Framlög
Framlög ÞSSÍ
Árið 2008 var Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) í samstarfi við sex þróunarríki, Malaví, Úganda, Namibíu, Mósambík, Níkaragva og Srí Lanka.
Hlutfall Íslands til þróunarmála nam 0,42% af vergum þjóðartekjum á árinu 2008. Það er umtalsvert hærra hlutfall en árin á undan, en ástæður þess eru aðallega tvær; lækkun á þjóðartekjum vegna efnahagshrunsins og gengisuppfærsla til ÞSSÍ vegna hruns íslensku krónunnar.
Þróunarsamvinnustofnun ráðstafaði um 46% af því fjármagni, eða tæpum tveimur milljörðum íslenskra króna.
Skipting framlaga 2008:
Eftir löndum:
Malaví - 23%
Mósambík - 16%
Úganda - 14%
Namibía - 12%
Srí Lanka - 10%
Níkaragva - 10%
Aðalskrifstofa - 7%
Önnur þróunaraðstoð - 8%
Eftir málaflokkum:
Menntamál - 28%
Fiskimál - 24%
Heilbrigðismál - 6%
Félagsmál - 9%
Vatns og hreinlætismál - 10%
Jarðhitamál - 6%
Annað - 10%
Aðalskrifstofa - 7%


Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is