Beint í leiðarkerfi vefsins.
„Núna að fimm árum loknum þá virðist verkefnið hafa tekist mjög vel,” segir Vilhjálmur Wiium sem er nýkominn frá Namibíu en hann var síðasti umdæmisstjóri ÞSSÍ í landinu. „Allar vatnsveiturnar 39 eru í lagi og útvega íbúum og búfénaði langþráð vatn.
Lesa meira
Þar sem áður stóð kofi fyrir stopula lyfjadreifingu er nú stór og velbúinn spítali. Fyrir um áratug hófu Íslendingar að byggja upp heilsugæslu við Apaflóa í Malaví, sem smátt og smátt hefur tekið á sig mynd. Myndin sem blasir við í dag er af stórum spítala með fjölbreytta þjónustu og 120 manna starfslið.
Lesa meira
„Loftslagsbreytingar hafa mest áhrif á þá sem fátækastir eru. Vegna þess að stór meirihluti þeirra sem eru fátækir eru konur þarf að taka sérstakt tillit til þarfa þeirra þegar kemur að aðlögun að breyttum aðstæðum sem tilkomnar eru vegna loftslagsbreytinga," segir María Nandago, yfirverkefnisfulltrúi hjá Þróunarsamvinnustofnun í Úganda. Þar hefur verið komið á fót nýju samstarfsverkefni við innlend stjórnvöld í samvinnu við Noreg og Danmörku, sem ætlað er að auka þekkingu á kynbundnum áhrifum loftslagsbreytinga í Úganda og getu til stefnumótunar sem tekur tillit til þessa.
Lesa meira
Stefnt er að því að í árslok verði tilbúin samstarfsáætlun fyrir Malaví en kveðið er á um gerð slíkra áætlana fyrir samstarfsríki í tvíhliða þróunarsamvinnu í þróunarsamvinnuáætlun 2011 til 2014 sem samþykkt var á þingi síðastliðið vor. Drög af samstarfsáætlun fyrir Malaví, sem jafnframt er fyrsta slíka stefnuskjalið sem gert er að Íslands hálfu, var á mánudaginn kynnt fyrir samstarfsráði um þróunarsamvinnu.
Lesa meira„Við teljum Ísland vera mjög mikilvægan samherja í stuðningi við þær þjóðir sem búa yfir jarðhita. Íslendingar eru í fararbroddi í heiminum þegar kemur að jarðhitatækni og þið hafið sjálf sýnt hvernig marka á brautina frá kolabrennslu til hreinnar orkunotkunar frá vatnsafls- og jarðhitavirkjunum. Þið hafið náð þeim einstaka árangri að 99% allrar orku í landinu kemur frá fallvötnum og jarðhita, bæði rafmagn og hiti. Við höfum áhuga á því að nýta einstakt forskot Íslendinga á þessu sviði, sérþekkingu ykkar og reynslu, í þágu Afríkuþjóða."
Lesa meira
„Hlutverkið er stórt og margþætt og ábyrgðin er umtalsverð. Við verðum í forsvari fyrir hópinn gagnvart stjórnvöldum og öðrum stofnunum og skipuleggjum og stýrum öllum fundum hópsins," segir Geir Oddsson verkefnastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Úganda, en Íslendingar gegna nú formennsku í samstarfshópi framlagsríkja í Úganda í umhverfis- og auðlindamálum.
Lesa meira
„Rödd ykkar er miklu sterkari en stærð ykkar segir til um,” sagði Paul Collier hagfræðiprófesssor og heiðursfyrirlesari á afmælismálþingi um íslenska þróunarsamvinnu sem utanríkisráðuneyti og Þróunarsamvinnustofnun Íslands héldu í Öskju síðastliðinn föstudag í samvinnu við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands og Alþjóðamálastofnun. Afmælismálþingið var fjölsótt, gestir rúmlega hundrað og fimmtíu og umræður fjörugar eftir framsöguerindi.
Lesa meira
Virk samfélagsþátttaka er mikilvægur þráður í þróunarsamvinnu þar sem kallað er eftir frumkvæði og þátttöku íbúanna sem leiðir til eignarhalds og sjálfbærni verkefna. Íbúar Tukululu þorpsins í Malaví eru skólabókardæmi um virka félagslega þátttöku í samfélagsverkefni þar sem allir íbúarnir njóta góðs af: verkefnið heitir WaSNan - og vísar til vatns- og hreinlætismála í Nankumba sveitinni.
Lesa meira
Árið 2011 markar 40 ára afmæli íslenskrar þróunarsamvinnu, 30 ára afmæli Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) og 10 ára afmæli Íslensku friðargæslunnar. Af þessu tilefni verður efnt til málþings í samvinnu við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands og Alþjóðamálastofnun, föstudaginn 21. október kl. 13:30 í Öskju, stofu 132 og verður heiðursfyrirlesari prófessor Paul Collier frá Oxford-háskóla.
Lesa meira
„Við þekktum hugtakið gæði en áttuðum okkur ekki á því hvaða ávinning við hefðum af því að auka gæði aflans fyrr en við sáum að betri verkun og gæði margfalda aurana sem koma í budduna,” segir Monica Olwee í þorpinu Kayei við Kyoga vatnið í norður Úganda. Hún er ein af íbúum þorpsins með það hlutverk að vera í framlínu í þróunarstarfi sem tengir saman fullorðinnafræðslu við hagnýta þekkingu um það sem lífið snýst um þorpi eins og Kayei, þ.e. veiðar og vinnslu á fiski úr vatninu
Lesa meira