Þróunarsamvinnustofnun styrkir unglingaskólann í Kitetikka í Kampala

12.8.2003

Árni Helgason, Umdæmisstjóri ÞSSÍ í Uganda

Í árlegri ferð sendinefndar frá skrifstofu Þróunarsamvinnustofnunar á Íslandi til Uganda í byrjun Mars var undirritað samkomulag um 6 milljón króna (80.000 US$) styrk til handa Kitetikka skólanum í nágrenni Kampala. Styrkurinn verður notaður til að byggja heimavist fyrir um 200 unglingsstúlkur við skólann.

kitetikka02


Skólinn í Kitetikka er rekinn af góðgerðarsamtökum sem nefna sig Uganda-Australia Foundation, sem stofnuð voru árið 1992. Stofnendur samtakanna eru hjónin Trudy og Francis Odida, sem jafnframt eru í forsvari fyrir þeim. Samtökin eru rekin á kristilegum grunni og beinist starf þeirra einkum að munaðarlausum börnum og flóttamönnum. Samtökin reka auk skólans í Kitetikka, skóla og  flóttamannabúðir fyrir Acholi-ættbálkinn í Pader héraði í norður Uganda. En Acholi hafa orðið sérstaklega illa úti vegna stríðsástandsins, sem ríkt hefur í Norður Uganda í 17 ár, og hefur orðið að flýja heimili sín og býli og halda til í flóttamannabúðum við þröngan kost. Starfsemin í Kitetikka hófst með stofnun barnaskóla fyrir munaðarlaus börn í nágrenni Kampala. Í skólanum eru allt frá smábörnum upp í unglinga í síðustu bekkjum gagnfræðaskóla, sem öll eiga það sammerkt að vera munaðarlaus og hafa misst annað eða bæði foreldri  í stríðsátökum eða vegna AIDS.
Starfsemin í Kitetika hefur undið upp á sig með árunum og bekkjum bætt við eftir því sem krakkarnir hafa sprottið, og nú er svo komið að hún spannar allt frá forskólastigi og upp í efstu bekki framhaldsskóla, og á’í framtíðinni er stefnt að iðnnám eftir gagnfræðaskóla til að gefa skjólstæðingum hagnýt tækifæri til atvinnu þegar námi sleppir og alvara lífsins tekur við.
ABC hjálparstarf á Íslandi hafa starfað um árabil með UAF og mörg hundruð börn í Kitetika og í skóla UAF í Gulu í norður Uganda eru studd til náms frá Íslandi í gegnum samtökin. Hefur þetta samstarf ABC hjálparstarfs og UAF verið til fyrirmyndar og hefur m.a. leitt til þess að Þróunarsamvinnustofnun hefur ákveðið að taka upp samstarf við UAF og aðstoða við frekari uppbyggingu í Kitetika.
Í þessum fyrsta áfanga verða byggðar tvær neðstu hæðirnar af fjórum í nýrri byggingu og þar verður heimavist fyrir um 200 stúlkur, sem nú stunda nám í unglingaskólanum. Á næsta ári er til athugunar að bæta við efstu hæðunum tveim, og klára þar með bygginguna. Verður þá komin heimavist og öll aðstaða fyrir 300 stúlkur við skólann.
 
Árni Helgason
Umdæmisstjóri ÞSSÍ í Uganda
Kampala - 5. Maí 2003





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica