Námskeiði um þróunar- og mannúðarmál lokið

18.5.2009

Þátttakendur
Þátttakendur
Þátttakendur í námskeiðinu ásamt hluta af fyrirlesurum. Ljósmynd: Anna Jóhannsdóttir.

Lokið er vel heppnuðu námskeiði um verksvið innlendra og alþjóðlegra stofnana sem koma að alþjóðlegri þróunarsamvinnu, friðarstarfi og neyðaraðstoð. Námskeiðið var haldið í samvinnu Rauða kross Íslands, Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, utanríkisráðuneytisins og Endurmenntunarstofnunar Háskóla Íslands. Námskeið sem þetta hefur ekki áður verið haldið á Íslandi.

Námskeiðið samanstóð af fyrirlestrum og verklegum æfingum undir leiðsögn sérfræðinga frá ofangreindum stofnunum. Alls luk 25 manns námskeiðinu en færri komust að en vildu og því hefur verið ákveðið að efna til annars námskeið síðar á árinu.

Markmiðið með námskeiðinu var að efla gagnrýna umræðu um alþjóðastarf á þessu sviði og veita þátttakendum innsýn í flókið samspili ólíkra gerenda á vettvangi.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica