Íslendingar í kosningaeftirliti í Malaví

20.5.2009

Veggspjald af forsetanum
Veggspjald af forsetanum
Bingu wa Mutharika verður áfram forseti Malaví. Ljósmynd: Stefán Jón Hafstein.

Fimm Íslendingar, starfsmenn Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, voru meðal kosningaeftirlitsmanna í Malaví við forseta- og þingkosningarnar sem fram fóru í gær. Fyrstu tölur benda til yfirburðasigurs Bingu wa Mutharika, forseta landsins.

"Það var mikil stemmning, greinilega hátíðisdagur og við sáum ekki annað en að kosningarnar hafi verið vel skipulagðar og farið mjög vel fram í öllum aðalatriðum," sagði Stefán Jón Hafstein umdæmisstjóri ÞSSÍ í Malaví í morgun. Hann sagði að kjörklefar hefðu verið sérsniðir úr pappaefni og víða hefði verið kosið undir trjám við skóla. "Í gærmorgun mynduðust langar biðraðir, fólk þurfti að bíða í tvo til þrjá tíma til að kjósa en þetta var allt rólegt og yfirvegað."

Að sögn Stefáns Jóns voru Íslendingarnar í samfloti með Bretum, Írum, Kanadamönnum og Þjóðverjum en líkt og önnur sendiráð í landinu buðu Íslendingar fram krafta sína við kosningaeftirlit. Á heimasíðu sinni bendir Stefán á að þrettán milljónir manna búa í landinu en aðeins tæplega sex milljónir hafi verið á kjörskrá, því annar hver íbúi sé undir 18 ára!

Bingu wa Mutharika forseta er þakkað hagsældarskeið sem einkennt hefur landið undanfarin ár. Hagvöxtur hefur verið um 7% á ári. "Fjöldi flokka býður fram en sjaldnast eftir sömu hugmyndafræðilegu línum og við þekkjum. Hér eru svæða- og persónustjórnmál mikilvæg. Bingu sækist eftir endurkjöri, en hann er annar forseti landsins eftir að fjölflokka lýðræði var komið á í Malaví 1994," segir Stefán Jón.

 

Nánar í Veftímariti um þróunarmál



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica