Úgandabúar sækja frumkvöðlanámskeið í HR
Tólf verðandi leiðbeinendur á frumkvöðlanámskeiðum í Úganda eru komnir hingað til lands á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og sækja þjálfunarnámskeið í Háskólanum í Reykjavík. Hópurinn dvelur hér á landi í tvær vikur og fær leiðsögn um það hvernig fanga á viðskiptatækifæri og hvernig unnt er að gera viðskiptahugmynd að veruleika. Eftir námið hér á landi heldur hópurinn heim og miðlar þessari þekkingu áfram.
Af hálfu ÞSSÍ hefur verið unnið að frumkvöðlaverkefninu í samstarfi við Fjárfestingastofu Úganda frá árinu 2007. Markmið verkefnisins er aðbæta aðgengi frumkvöðla í atvinnulífi Úganda að þjálfun og fræðslu til að auka getu þeirra til að taka þátt í atvinnulífinu og þjálfa þá til þátttöku í viðskiptum, þ.m.t. í meðhöndlun fjármála, bókhalds og notkun upplýsingatækni. Áhersla er lögð á að ná til fólks sem þegar er í viðskiptum í litlum og meðalstórum fyrirtækjum, með sérstaka áherslu á konur í slíkum viðskiptum. Verkefnið er rekið af Fjárfestingastofu Úganda með fjárhagslegum og leiðbeinandi stuðningi ÞSSÍ.
Á árinu 2008 luku tæplega 2000 frumkvöðlar námskeiðinu sem er umtalsvert meira en gert var ráð fyrir. Um mitt síðasta ár leitaði sendiráð Belgíu í Kampala til umdæmisskrifstofu ÞSSÍ og óskaði eftir því að gerast aðili að verkefninu og setja hálfa milljón evra því til stuðnings. Belgíumenn urðu þar með svokallaðir þöglir samstarfsaðilar (Silent partners), þ.e.a.s. þeir treysta á ÞSSÍ varðandi tilsjón með verkefninu og ábyrgð á framkvæmdinni og fá sjálfir aðeins skýrslur um framvindu þess.
Þetta er annar hópur Úgandabúa sem kemur hingað til lands í frumkvöðlaþjálfun á vegum Þróunarsamvinnustofnunar en fyrri hópurinn dvaldi hér sumarið 2006.




Rauðarárstígur 27, 125 Reykjavík, sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is