Malaví með tæplega fjórðung framlaga Þróunarsamvinnustofnunar

- ársskýrsla 2008 komin út

29.6.2009

Ársskýrsla ÞSSÍ/ICEIDA 2008
Ársskýrsla ÞSSÍ/ICEIDA 2008
Forsíða nýútkominnar ársskýrslu Þróunarsamvinnustofnunar Íslands/ICEIDA.

“Þróunarsamvinnustofnun Íslands endurspeglar lífskjör íslensku þjóðarinnar á sama hátt og allar aðrar íslenskar stofnanir, fyrirtæki og heimili. Þegar vel árar ríkir velmegun meðal landsmanna og sú velmegun hefur jákvæð áhrif á allt umhverfið. „Það er fallegt við Breiðafjörð þegar vel veiðist,“ var sagt á Íslandi hér á árum áður þegar fiskgengd á miðunum við landið réði því hvort þjóðinni farnaðist vel eða illa. Þeir dagar eru nú löngu liðnir þegar fiskurinn einn réði hvort íslenska þjóðin hefði í sig og á.”

Þannig farast Sighvati Björgvinssyni framkvæmdastjóra ÞSSÍ orð í formála nýrrar ársskýrslu stofnunarinnar fyrir árið 2008 sem kemur út í vikunni. Síðar í formálunum segir Sighvatur:

“Árið 2008 byrjaði vel og gaf góð fyrirheit um áframhaldandi aukningu á opinberum framlögum til þróunaraðstoðar. Utanríkisráðherra og ríkisstjórnin mörkuðu þá nýju stefnu að þróunarsamvinna skyldi verða ein af þremur meginstoðum íslenskrar utanríkisstefnu. Í samræmi við það var áfram haldið að auka framlög til málaflokksins og hillti undir að innan fárra ára kæmist Ísland í hóp þeirra fáu þjóða sem náð hafa markmiði S.þ. um að verja 0,7% af vergum þjóðartekjum til þróunarsamvinnu. Í anda þessarar stefnu var unnið allt fram til þeirrar örlagaríku viku í októbermánuði þegar gervallt íslenska fjármálakerfið hrundi til grunna. Þá breyttist allt. Umhverfið tók á sig gerólíka mynd.”

Ársskýrslan er gefin út bæði á íslensku og ensku og greinir ítarlega frá starfseminni í sex samstarfsslöndum Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu.

Þróunarsamvinnustofnun Íslands ráðstafaði tæplega 1.960 milljónum króna til tvíhliða þróunarsamvinnu á árinu 2008 sem er hækkun um 76% frá árinu 2007. Helsta skýringin er veiking íslensku krónunnar þar sem um 90% af útgjöldum stofnunarinnar er í erlendum gjaldmiðlum, en miðað við gengi bandaríkjadals nam raunhækkun útgjalda aðeins 28%. Hlutdeild ÞSSÍ í allri opinberri þróunaraðstoð Íslands nam um 46% árið árinu miðað við 37% árið 2007. Aftur er hér um aukningu að ræða milli ára vegna breytinga á gengi íslensku krónunnar.

Malaví er enn það samstarfsland ÞSSÍ sem fær mestan stuðning með 23% af heildarframlögum stofnunarinnar eða um 452 milljónir króna. Mósambík kemur næst á eftir með um 16% af heildarframlögum eða um 315 milljónir króna. Úganda er sem fyrr í þriðja sæti en þangað var ráðstafað um 282 milljónum króna eða 14% af heildarframlögum ÞSSÍ. Framlögin til Níkaragva jukust mest milli ára en þangað var ráðstafað um 10% framlaga ÞSSÍ árið 2008.

Milli áranna 2007 og 2008 varð ekki veruleg breyting á skiptingu framlaga eftir málaflokkum. Rúmlega helmingur framlaganna fór til mennta- og fiskimála árið 2008, þar af 28% til menntamála og 24% til fiskimála.

Íslenskum starfsmönnum Þróunarsamvinustofnunar erlendis fækkaði verulega á síðasta ári, eða úr 28 árið 2007 í 18 árið 2008 en staðarráðnum starfsmönnum fjölgaði að sama skapi.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica