Tuttugu ára þróunarsamvinnu Íslendinga í Namibíu að ljúka

21.7.2009

Samstarfi við Namibíu að ljúka
Samstarfi við Namibíu að ljúka
Ákveðið hefur verið að framlengja ekki samstarfssamning við Namibíu en honum lýkur 2010. Myndin er af Himbabörnum en ÞSSÍ hefur stutt við bakið á þessum merka þjóðflokki í norðurhluta Namibíu síðustu árin. Ljósmynd: Gunnar Salvarsson.

Tuttugu ára þróunarsamvinnu Íslendinga og Namibíumanna lýkur í lok næsta árs. Íslensk stjórnvöld hafa formlega tilkynnt stjórnvöldum í Namibíu að ekki sé unnt að verða við óskum þeirra um framlengingu á samstarfssamningi milli þjóðanna um þróunarsamvinnu. Samstarfsþjóðum Íslendinga í tvíhliða þróunarsamvinnu fækkar því um helming á tveimur árum, úr sex í þrjár, en þegar hefur umdæmissskrifstofu Þróunarsamvinnustofnunar Íslands á Srí Lanka verið lokað og þessa dagana er verið að loka skrifstofunni í Níkaragva.

Sighvatur Björgvinsson framkvæmdastjóri ÞSSÍ afhenti fyrir skömmu yfirmanni NPC, skrifstofu á vegum embættis forseta Namibíu, svarbréf frá Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra við beiðni um að samstarfssamningur þjóðanna yrði framlengdur. Þar kemur fram að vegna efnahagsástandsins í kjölfar bankahrunsins væri íslenska ríkisstjórnin nauðbeygð til þess að gera mikið átak til lækkunar ríkisútgjalda sem óhjákvæmilega kæmi niður á getu þjóðarinnar til þess að veita þróunaraðstoð. Sighvatur skýrði jafnframt frekari ástæður þess að Íslendingar yrðu að hætta formlegri þróunaraðstoð við Namibíu í árslok 2010 en hét því að standa við allar skuldbindingar og fyrirheit um framkvæmd samningsbundinna verkefna.

Leitað hefur verið eftir því við íslensku starfsmennina tvo sem starfa í Namibíu á vegum ÞSSÍ, Vilhjálm Wiium umdæmisstjóra og Davíð Bjarnason verkefnisstjóra félagslegra verkefna, að þeir starfi út samningstímann.

Íslendingar hófu þróunarsamvinnu við Namibíu sama ár og landið fékk sjálfstæði frá Suður-Afríku, árið 1990.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica