Norræn samvinna í verki
Skrifstofa Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Níkaragva hefur fengið starfsaðstöðu í sendiráði Finna í höfuðborginni Managua en umdæmisskrifstofu ÞSSÍ og sendiráði Íslands verður lokað um næstu mánaðamót. Vegna skuldbindinga Íslands um samstarf við stjórnvöld í Níkaragva um jarðhitamál fram til 2012 verður rekin skrifstofa í landinu út samningstímann og Finnar tóku þeirri málaleitan vel að hýsa fulltrúa Íslands.
Samningurinn við Finna gildir til ársloka 2012.
Á myndinni handsala þau samninginn, Eija Rotin, sendiherra Finna og Geir Oddsson umdæmissstjóri Þróunarsamvinnustofnunar.
Frétt á heimasíðu sendiráðsins




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is