Samið við Háskólann í Reykjavík um heilbrigðisverkefni í Malaví
Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur samið við Háskólann í Reykjavík um sérfræðiaðstoð með framkvæmd heilbrigðisverkefnis í Malaví sem lýtur m.a. að starfsemi sjúkrahússins í Monkey Bay sem byggt var fyrir íslenskt þróunarfé. Aðgerðaáætlun um stuðning við uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á þessu svæði var upphaflega gerð við heilbrigðisráðuneytið í Malaví árið 2000.
Samkvæmt samningnum við Háskólann í Reykjavík felur hann í sér kaup á ráðgjöf varðandi stjórnun og eftirlit með framkvæmd verkefnisins, en einnig svokallaða grunngildaathugun og setu í verkefnisstjórn sjúkrahússins.




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is