Þróunarsamvinnustofnun afhendir skólastofur í nýjan grunnskóla heyrnarlausra barna
Þróunarsamvinnustofnun Íslands afhenti í vikunni sýsluyfirvöldum í Ohangwena-sýslu í Namibíu þrjár nýjar skólastofur í nýjan grunnskóla fyrir heyrnarlaus börn. Skólastofurnar eru þær fyrstu í Usko Nghaamwa skólanum í bænum Eenhana.
Að sögn Vilhjálms Wiium umdæmisstjóra ÞSSÍ í Namibíu hófst skólastarf þarna árið 2006 þegar nokkrir foreldrar heyrnarlausra barna settu á laggirnar leikskóla. Fyrsti kennarinn var Tresia Haiduwa en um líf hennar gerði Margrét Blöndal heimildarmynd fyrir nokkru í samstarfi við Þróunarsamvinnustofnun og Ríkisútvarpið.
“Þrátt fyrir ýmsa erfiðleika í rekstri leikskólans tóku menntamálayfirvöld í sýslunni eftir þessari starfsemi,” segir Vilhjálmur. “Þeim þótti framtakið þess virði að styðja enda er vitað að mörg heyrnarlaus börn búa í nágrenni Eenhana. Yfirvöld ákváðu að taka við rekstrinum og breyta leikskólanum í grunnskóla. Skólastarf hófst í janúar síðastliðnum og þá voru tekin inn börn í forskóla og fyrsta bekk. Verður síðan bætt við nýjum bekk árlega.”
Sýsluyfirvöld óskuðu eftir stuðningi ÞSSÍ við breytingarnar að sögn Vilhjálms. Stuðningurinn fólst í þrennu, þriggja mánaða þjálfun kennara í táknmáli, tjöldum sem notuð voru sem bráðabirgðahúsnæði og bygging skólastofanna þriggja. Byggingarframkvæmdir hófust að loknum regntímanum og skólastofurnar voru tilbúnar á mettíma. Skólinn er nefndur eftir sýslustjóra Ohangwena og hann tók hann við lyklunum að skólastofunum frá Vilhjálmi.
“Það ríkti mikil gleði í Eenhana með nýju skólastofurnar. Heimamönnum þykir með ólíkindum að ókunnugt fólk frá landi óralangt í burtu skuli veita samfélaginu stuðning af þessu tagi. ÞSSÍ var þakkað sitt framlag við hátíðlega athöfn þar sem skólabörn sýndu dansa og önnur skemmtiatriði,” segir Vilhjálmur Wiium.




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is