Unnið að stofnun Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra í Namibíu

6.8.2009

Skrifað undir samning
Skrifað undir samning
Verksamningurinn undirritaður, Valgerður Stefánsdóttir forstöðumaður SHH og Sighvatur Björgvinsson framkvæmdastjóri ÞSSÍ. Ljósmynd: Gunnar Salvarsson.

Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra á Íslandi ætlar að styðja við bakið á stjórnvöldum í Namibíu við stofnun og starfsrækslu sambærilegrar stofnunar þar í landi. Undanfarin ár hefur Samskiptamiðstöðin unnið á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands við að bæta kennslu heyrnarlausra í Namibíu með áherslu á táknmál og þjálfun táknmálstúlka.

Samkvæmt nýjum verksamningi við ÞSSÍ mun Samskiptamiðstöðin veita sérfræðiaðstoð til að efla þátttöku heyrnarlausra og heyrnarskertra í namibísku samfélagi, m.a. með stuðningi við stofnun og starfrækslu Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra í Namibíu, ráðgjöf og stuðningi við kennslu og rannsóknir á namibísku táknmáli, þjálfun táknmálstúlka og ráðgjöf við skipulagningu verkefna.






Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica