Opið hús á Menningarnótt
Þróunarsamvinnustofnun Íslands verður með opið hús á Menningarnótt, laugardaginn 22. ágúst. Opið verður á aðalskrifstofu ÞSSÍ í Þverholti 14, 2. hæð, frá klukkan 14-18. Starfsfólk ÞSSÍ býður alla hjartanlega velkomna í heimsókn til að kynna sér starfsemi stofnunarinnar.
Eins og flestir vita fer ÞSSÍ með tvíhliða þróunarsamvinnu fyrir hönd íslenskra stjórnvalda við fjögur ríki í Afríku, Malaví, Mósambík, Namibíu og Úganda.
Starfsemin verður kynnt í máli og myndum og kynningarrit liggja frammi. Einnig verða til sýnis ýmiss listaverk frá samstarfsþjóðum Íslendinga sem ÞSSÍ hefur eignast frá því stofnunin tók til starfa fyrir rúmum aldarfjórðungi, málverk, höggmyndir og trélistaverk af ýmsu tagi. Einnig ljósmyndir frá Afríku.
Aðstaða verður fyrir börn til að teikna og lita. Kaffi og kleinur á boðstólum.




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is