Úttekt á fullorðinsfræðsluverkefni ÞSSÍ í Úganda

26.8.2009

Fullorðinsfræðsluverkefnið byggir á hagnýtri þekkingu og hefur skilað miklum árangri.
Fullorðinsfræðsluverkefnið byggir á hagnýtri þekkingu og hefur skilað miklum árangri.
Fullorðinsfræðsluverkefnið byggir á hagnýtri þekkingu og hefur skilað miklum árangri.

Út er komin lokaskýrsla vegna úttektar sem gerð var á fullorðinsfræðsluverkefni sem ÞSSÍ styður í Mukono héraði í Úganda. Niðurstöður úttektarinnar sýna að fullorðinsfræðsla skiptir máli fyrir samfélögin sem í hlut eiga, og landið í heild. Hún hefur jákvæð áhrif á aðra þætti samfélagsins og er mikilvæg í baráttu þeirra við fátækt. Fullorðinsfræðslan gegnir jafnframt mikilvægu hlutverki ef ná á Þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og þróunarmarkmiðum Úganda.

ÞSSÍ hóf stuðning við fullorðinsfræðslu í Úganda árið 2002 og má nálgast upplýsingar um verkefnið og úttektarskýrsluna sjálfa hér á heimasíðunni.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica