Rýniskýrsla um vatns- og hreinlætisverkefni ÞSSÍ í Malaví

27.8.2009

Brunnur í smíðum
Brunnur í smíðum
Fjölmargir brunnar verða gerðir í verkefninu.

Nýlega var gefin út rýniskýrsla um vatns- og hreinlætisverkefni sem ÞSSÍ styður á Monkey Bay svæðinu í Mangochi héraði í Malaví. Niðurstöður rýninnar eru afar jákvæðar og segir m.a. í skýrslunni að ef hún eigi að skila einu áliti, séu það tilmæli til hluteigandi aðila um að nota verkefnið sem fyrirmynd í að byggja upp vatns- og hreinlætismál á landsvísu í því skyni að auka efnahagslega þróun, draga úr fátækt og auka heilbrigði meðal íbúa landsins.

ÞSSÍ hóf stuðning við vatns- og hreinlætismál á svæðinu árið 2006 og má nálgast nánari upplýsingar um verkefnið og rýniskýrsluna hér á heimasíðunni.

 





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica