Úttekt á stuðningi ÞSSÍ við kvenna- og félagsmálaráðuneytið í Mósambík
Lokaskýrsla vegna úttektar á stuðningi Þróunarsamvinnustofnunar við kvenna- og félagsmálaráðuneytið í Mósambík sýnir að verkefnið hefur haft jákvæð áhrif bæði hvað varðar uppbyggingu á tækjakost ráðuneytisins og þjálfun starfsmanna á ýmsum sviðum.
Í niðurstöðunum er jafnframt bent á að stuðningur ÞSSÍ hafi gert ráðuneytinu kleift að vinna undirbúningsvinnuna sem leiddi til þess að þjóðaráætlun gegn kynbundnu ofbeldi var samþykkt í landinu.
ÞSSÍ hefur veitt kvenna- og félagsmálaráðuneytinu stuðning allt frá árinu 2000 og felst hann í stuðningi við innri uppbyggingu og starfsemi ráðuneytisins og skrifstofu þess í fjórum af ellefu sýslum landsins. Í skýrslunni er einnig bent á atriði sem betur mega fara og veitir hún því starfsmönnum ÞSSÍ því mikilvægar ábendingar við undirbúning annarra álíka verkefna.
Lokaskýrsluna má nálgast hér á heimasíðunni og nánari upplýsingar um verkefnið má finna hér.




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is