Samskiptamiðstöð heyrnarlausra stofnuð í Namibíu að íslenskri fyrirmynd

16.9.2009

Draumasmiðjan
Draumasmiðjan
Frá sýningu sem leikhópur heyrnarlausra, Draumasmiðjan, setti upp í Namibíu fyrr á árinu. Ljósmynd: Vilhjálmur Wiium.

Menntamálaráðuneyti Namibíu hefur úthlutað lóð fyrir nýja Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og verið er að teikna húsnæði og ráða fólk til starfa. Stefnt er að því að starfsfólk námibísku samskiptamiðstöðvarinnar, sem hlotið hefur nafnið Center for Communication and Deaf studies (CCDS), komi til Íslands í þjálfun á næsta ári hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra.

"Það var verulega ánægjulegt að sjá hvernig þjónusta við heyrnarlausa er að festa rætur og spíra um allt land. Heyrnarlausir, sem fengið hafa þjálfun, eru farnir að kenna öðrum og túlkar túlka fyrir heyrnarlausa í námi. Viðhorf innan skólakerfisins eru að breytast þar sem skólamenn eru að vakna til vitundar um að heyrnarlausir geti menntast," segir Valgerður Stefánsdóttir framkvæmdastjóri Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra í grein um táknmálsverkefni ÞSSÍ í Namibíu.

Fram kemur í grein Valgerðar að samskiptamiðstöðin CCDS verður opnuð nú á haustdögum og þar verði haldið áfram að vinna að uppbyggingu og þróun starfseminnar. Gert sé ráð fyrir að samskiptamiðstöðvarnar á Íslandi og í Namibíu eigi áframhaldandi samstarf þótt skrifstofu Þróunarsamvinnustofnunar í Namibíu verði lokað. "Þannig má fullyrða að hafin sé þróun í Namibíu sem getur ekki annað en eflst og dafnað og mun leiða til mikilla og jákvæðra breytinga á lífi heyrnarlausa í landinu," segir Valgerður.

Hún segir samstarf Þróunarsamvinnustofnunar, SHH og menntamálaráðuneytis Namibíu hafa verið afar ánægjulegt. Starfsfólk skrifstofu ÞSSÍ í Namibíu hafi ásamt heimamönnum unnið að þróun og uppbyggingu á þjónustu við heyrnarlausa í Namibíu eftir tillögum ráðgjafa SHH og mikill árangur hafi náðst.


Grein Valgerðar Stefánsdóttur

<script>function fbs_click() {u=location.href;t=document.title;window.open('http://www.facebook.com/sharer.php?u='+encodeURIComponent(u)+'&t='+encodeURIComponent(t),'sharer','toolbar=0,status=0,width=626,height=436');return false;}</script><a href="http://www.facebook.com/share.php?u=</frettir/nr/1033>" onclick="return fbs_click()" target="_blank"><img src="http://b.static.ak.fbcdn.net/rsrc.php/zAB5S/hash/4273uaqa.gif" alt="" /></a>





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica