Verksamningur við ÍSOR um jarðhitaverkefni í Níkaragva

25.9.2009

Samið við Íslenskar orkurannsóknir
Í nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa felast mikil verðmæti fyrir heimsbyggðina
Ljósmynd: Gunnar Salvarsson.

Skrifað hefur verið undir verksamning milli Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) og Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR) um jarðhitaverkefni í Níkaragva. Samningurinn felur í sér að ÍSOR veitir sérfræðiaðstoð á sviði jarðhita í Níkaragva á tímabilinu frá 2009 til 2012. Verkið er hluti af þróunaraðstoð Íslendinga í samvinnu við stjórnvöld og hefur það markmið að byggja upp færni og þekkingu innan ríkisstofnana sem koma að þróun jarðhitaauðlinda í landinu.

Umdæmisskrifstofu og sendiráði Íslands í Managua, höfuðborg Níkaragva, var lokað í sumar en því var þá heitið að staðið yrði að fullu við samninga frá árinu 2008 um jarðhitaverkefnið sem lýkur í árslok 2012. ÍSOR hefur frá upphafi verið helsti samstarfsaðili ÞSSÍ og með samningnum sem undirritaður var á dögunum er samstarfið tryggt út samningstíma verkefnisins.

Einn staðarráðinn starfsmaður ÞSSÍ, Gioconda Guevara, hefur yfirumsjón með verkefninu og hefur aðsetur í sendiráði Finna í Managua.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica