Öryggisnámskeið ÞSSÍ fækka slysum á Malavívatni
Námskeið í öryggismálum í fiskiþorpum við Malavívatn sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur staðið fyrir á undanförnum árum hafa leitt til þess að slysum á vatninu hefur fækkað verulega. Að sögn Stefáns Kristmannssonar verkefnisstjóra liggja engar tölur fyrir um drukknanir fiskimanna á Malavívatni en hluti af verkefninu hefur verið að bæta úr skráningu. Hann segir að nú sé upplýsingum um slys safnað og þau skrásett hjá yfirvöldum. “Hvarvetna þar sem við höfum verið með þjálfun í öryggismálum fiskimanna eru menn á einu máli um fræðslan hafi fækkað slysum verulega, þar með talið dauðaslysum,” segir Stefán.
Námskeiðin hafa verið haldin í fiskiþorpum við suðurhluta Malavívatns, í Mangochi héraði og Stefán telur að nálægt 40% fiskimanna í þessum þorpum hafi sótt námskeiðin, þar af 8% konur. Hann segir að þeim hafi verið geysilega vel tekið. “Þau eru byggð á öryggisnámskeiðum fyrir sjómenn, meðal annars skyndihjálp. Við aðlöguðum námskeiðin aðstæðum, prentuðum bækinga og nýttum okkur útvarp til að vekja athygli á mikilvægi þeirra,” segir Stefán.
Við Malavívatn er tækni til veiða frekar frumstæð og fiskimenn fátækir. “Þeir hafa hvorki góða báta né hentug veiðarfæri til að nýta sér mögulegar veiðar á dýpra vatni. Þess vegna kom beiðni frá malavískum stjórnvöldum til Þróunarsamvinnustofnunar þess efnis að aðstoða við tæknibúnað smábáta til að gera þeim kleift að veiða á dýpra vatni. Verkefnið hófst með upplýsingaöflun í fiskiþorpum í Mangochi héraði við suðurhluta vatnsins. Fljótlega kom í ljós að ekki aðeins vantaði bátakost og veiðarfæri til veiða á dýpra vatni heldur einnig að fiskimenn og konur höfðu aldrei fengið neinar upplýsingar um öryggismál við störf á vatninu eða í meðferð báta og veiðarfæra.”
Fyrsta kafla þessa verkefnis um tækniþróun smábáta á Malavívatni lýkur um áramót. Samkvæmt óháðri úttekt á verkefninu hefur flestum markmiðum þess verið náð. Óvíst er um framhald á verkefninu en að sögn Stefáns er ljóst að þúsundir fiskimanna við Malavívatn myndu vilja þjálfun í öryggismálum af því orðspori sem fer af námskeiðunum. “Það mundi verulega auka öryggi fiskimanna og þeirra fjölskyldna að okkar mati,” segir Stefán Kristmannsson.
Eldri frétt: Fyrsta námskeiðið í Malaví um öryggismál fiskimanna – ágúst 2007




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is