Forseti Malaví kynnti sér starfsemi Þróunarsamvinnustofnunar

22.10.2009

Verkefnin kynnt fyrir forsetanum
Verkefnin kynnt fyrir forsetanum
Faniza Kaulembe kynnti verkefni ICEIDA (Þróunarsamvinnustofnunar Íslands) fyrir forseta og varaforseta Malaví og öðrum gestum á hátíðinni. Ljósmynd: Jó Tore Berg.
Mynd 1 af 2
1 2

Bingu wa Mutharika forseti Malaví og Joyce Banda varaforseti landsins kynntu sér á dögunum verkefni Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í sunnanverðu landinu í tilefni af hátíðahöldum sem fram fóru á alþjóðlegum degi kvenna í strjálbýli, fimmtudaginn 15. október. Þema dagsins var: Mæður eru mikilvægar í öllu: virðum þær!

Sex kynningarbásum um verkefni sem tengjast mæðrum var komið fyrir í þorpinu Makawa og þar sem fullorðinnafræðsluverkefni ÞSSÍ er unnið í nánu samstarfi við stjórnvöld og héraðsyfirvöld var sá bás fremstur í röðinni. “Forsetinn skoðaði básinn og honum var sagt frá verkefninu og starfsemi Þróunarsamvinnustofnunar,” segir Jó Tore Berg verkefnisstjóri ÞSSÍ í fullorðinnafræðslu. Hann bætir við að aðeins einn fulltrúi hafi mátt tala við forsetann og það hafi komið í hlut Fanizu Kaulembe að sjá um þá kynningu en hún er starfsmaður i þróunarmálum á vegum ríkisins í héraðinu. Auk forsetans, sem var heiðursgestur, heimsóttu básinn ráðherra jafnréttismála og varaforsetinn.

“Þetta var mikil hátíð með söngvum, dansi og ræðum, allt mjög vel heppnað og mikið af fólki á staðnum,” segir Jó. “Við vorum með léttlestrarbækur í básnum okkar og ýmsar vörur frá fólki sem tekur þátt í verkefnum sem eiga að stuðla að lífskjarabótum, og við vorum líka með kort yfir öll verkefni Þróunarsamvinnustofnunar í Malaví,” segir hann. Lífskjarabótahóparnir eru ellefu talsins og starfa innan leshringja í fullorðinnafræðslunni. Um er að ræða fólk sem þarf nauðsynlega að bæta lífskjör sín og fær stuðning í verkefninu til að bæta afkomuna með húsdýrum, eins og hænum og geitum, auk þess sem fólkið ræktar grænmeti yfir þurrkamánuðina og selur á markaði.

Jó segir að ríkissjónvarp Malaví hafi verið með beina útsendingu frá hátíðinni og tekin hafi verið viðtöl við alla þrjá fulltrúana sem stóðu að kynningarbásnum með íslensku verkefnunum. “Ég sagði aðeins frá starfssemi ÞSSÍ í Malaví, að við værum búin að vera í landinu í 20 ár, sagði hvaða verkefni við værum að styrkja, af hverju við værum í fullorðinnafræðsluverkefnum og hvers vegna við legðum áherslu á þátttöku kvenna,” segir Jó.

Fullorðinnafræðsluverkefnið gengur vel að sögn Jó og þátttakendur eru um tvö þúsund í héraðinu sem skiptast upp í 94 leshringi. “Við erum með leshringi í næstum því hverju þorpi á svæðinu og það er ljóst að það verður mikið að gera bæði á þessu ári og því næsta. Verkefninu lýkur í lok ársins 2010 og bæði fulltrúar ráðuneytis og fulltrúar hérðasyfirvalda spyrja oft hvort við getum ekki haldið því áfram.”





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica