Þrjú skref áfram - eitt afturábak

Þróunarsamvinnustofnun Íslands og Háskólinn í Reykjavík boða til morgunverðarfundar um uppbyggingu lýðheilsu í Malaví

29.10.2009

Ný fæðingarálma rís í Monkey Bay
Ný fæðingarálma í Monkey Bay
Myndin var tekin þegar unnið var að byggingu nýrrar fæðingarálmu við sjúkrahúsið í Monkey Bay. Ljósmynd: Stefán Jón Hafstein.
Í tilefni af 20 ára samstarfi Íslands og Malaví á sviði þróunarsamvinnu og 10 ára samstarfi við heilbrigðisyfirvöld í landinu efnir Þróunarsamvinnustofnun Íslands til morgunverðarfundar í samstarfi við Háskólann í Reykjavík. Unnið hefur verið að lýðheilsuverkefnum fyrir íslenskt þróunarfé í einn áratug.

Á þeim tíma hafa orðið miklar og markverðar breytingar á heilsugæslu og þjónustu við rúmlega eitt hundrað þúsund íbúa á Monkey Bay svæðinu. Á fundinum verður kynnt ný úttekt Geirs Gunnlaugssonar prófessors í lýðheilsu við HR og Jónínu Einarsdóttur prófessors í mannfræði við HÍ um stöðu heilsugæslunnar og viðhorf til hennar. Einnig verður rætt um heilsugæslu í skugga HIV og alnæmis.

Staður: Háskólinn i Reykjavík- Kringlunni (gamla Morgunblaðshúsið)

Dagur: 3. nóvember 2009

Tími: 8:15-10:00

Dagskrá:

Ávarp - Sighvatur Björgvinsson framkvæmdastjóri ÞSSÍ

Heilsugæsla í umbreytingu - Geir Gunnlaugsson prófessor í lýðheilsu við HR 

Viðhorf íbúa og starfsfólks til heilsugæslunnar  - Jónína Einarsdóttir prófessor í mannfræði við HÍ

Heilsugæsla í skugga HIV og alnæmis - Inga Dóra Pétursdóttir meistaranemi í þróunarfræðum við HÍ

 

Umræður.

Fundarstjóri: Sighvatur Björgvinsson framkvæmdastjóri ÞSSÍ.

ATH! Léttur morgunverður í upphafi fundar.

 

Hverja mínútu deyr kona af barnsförum - grein eftir Stefán Jón Hafstein



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica