Stórstígar framfarir á tíu árum að mati íbúa í Monkey Bay

- vel heppnaður morgunverðarfundur ÞSSÍ og HR

5.11.2009

Frá morgunverðarfundinum
Frá morgunverðarfundinum
Inga Dóra Pétursdóttir svarar surningum þátttakenda á morgunverðarfundinum. Ljósmynd: Gsal

Heilbrigðisþjónustan í Monkey Bay hefur að mati íbúa á svæðinu tekið stórstígum framförum og þeir telja að svæðissjúkrahúsið veiti næstum jafngóða þjónustu og hérðaðssjúkrahúsið í Mangochi. Á morgunverðarfundi ÞSSÍ og Háskólans í Reykjavík 3. nóvember var staða heilbrigðisverkefnis ÞSSÍ í Malaví til umræðu.

Á fundinum kynntu Geir Gunnlaugsson prófessor við HR og Jónína Einarsdóttir prófessor frá HÍ niðurstöðu rannsóknar sem þau framkvæmdu á Monkey Bay svæðinu í apríl á þessu ári. "Ef íbúarnir gætu óskað sér einhvers þá væri það að efla svæðissjúkrahúsið í Monkey Bay enn meir en nú er, byggja fleiri ríkisreknar heilsugæslustöðvar til að komast hjá komugjöldum og fá lyf án kostnaðar og svo að bæta samgöngur á þann hátt að veikt fólk hafi greiðari aðgang að þjónustunni," sagði Jónína Einarsdóttir á fundinum.

Fram kom í erindum Jónínu og Geirs að huga þurfi að bættum samgöngum og mikilvægt sé að þróa eftirlit með sjúkrabílum. Einnig þurfi að auka þjónusta í þorpum og bæta aðstöðuna þar. "Bregðast þarf við nýjum reglum heilbrigðisráðuneytisins um hlutverk yfirsetukvenna og þá sérstaklega að bæta aðstöðu kvenna sem bíða fæðinga. Miklivægt er að styðja við heilsugæslu fyrir alla án gjaldtöku," sögðu þau.
 
Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur á liðnum áratug unnið með heilbrigðisyfirvöldum í Malaví að því að efla heilbrigðisþjónustuna á Monkey Bay svæðinu í Mangochi héraðinu í suðurhluta landsins. Á svæðinu búa rúmlega 110.000 manns. Stuðningur ÞSSÍ hefur m.a. falist í því að styrkja innviði heilbrigðisþjónustunnar með byggingu á svæðissjúkrahúsi þar sem í boði er fjölbreytt þjónusta á göngu- og legudeildum. Heilsugæslustöðin í Nankumba hefur einnig verið endurbætt og starfsfólk fengið símenntun í starfi. Heilsugæslustarfið hefur einnig verið eflt í þorpum á svæðinu með auknu aðgengi starfsfólks að mótorhjólum og svo sjúkrabíl fyrir veika íbúa, svo eitthvað sé nefnt.
 
Markmið rannsóknar Geirs og Jónínu var að skoða núverandi stöðu heilsugæslunnar á Monkey Bay svæðinu og breytingar á þjónustunni síðan samstarfið hófst. Annað markmið með rannsókninni var að koma með tillögur um heilbrigðisvísa svo hægt sé að meta árangur stuðnings ÞSSÍ við heilbrigðisþjónustu svæðisins við fyrirhuguð lok þess í desember 2011. Þau ræddu við rúmlega 140 einstaklinga í rannsókninni með aðstoð túlks.
 
Á morgunverðarfundinum flutti einnig Inga Dóra Pétursdóttir meistaranemi í þróunarfræðum erindi um heilsugæslu í skugga HIV og alnæmis. 

Nálgast má úrdrátt úr erindum Geirs og Jónínu ásamt glærum fyrirlesaranna þriggja hér á vefsíðu ÞSSÍ.




Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica