Læknanemar til rannsóknarstarfa í Malaví

Heilbrigðisástand í Malaví er með því bágbornasta sem gerist í Afríku

29.10.2004

Mæðravernd í Malaví
Mæðravernd í Monkey Bay

Þróunarsamvinnstofnun Íslands (ÞSSÍ) og læknadeild Háskóla Íslands skrifuðu í dag undir samkomulag um rannsóknarverkefni tveggja íslenskra læknanema árið 2005 í tengslum við framkvæmdir og þjálfunarverkefni í heilbrigðismálum, sem ÞSSÍ hefur umsjón með í Monkey Bay í Malaví.

Læknanemarnir munu dveljast í Malaví við rannsóknir og gagnaöflun í 1-2 mánuði á vormisseri á næsta ári og vinna síðan á Íslandi við úrvinnslu rannsóknanna og samningu ritgerða um rannsóknarverkefni sín.

Undirritun samnings ÞSSÍ og HÍ

Undir samninginn skrifuðu Sighvatur Björgvinsson framkvæmdastjóri fyrir hönd ÞSSÍ og Páll Skúlason rektor og Stefán B. Sigurðsson forseti læknadeildar af hálfu Háskóla Íslands.

 

ÞSSÍ hefur umsjón með tvíhliða þróunarsamvinnu milli Íslands og Malaví og er stærsta verkefni stofnunarinnar uppbygging heilsugæslu í Monkey Bay héraði. Tilgangur verkefnis læknanemanna er að skoða fæðingarhjálp á heilsugæslustöðvum á svæðinu. Gagnaöflun á því sviði er afar mikilvæg og geta rannsóknarniðurstöður aukið skilvirkni þeirrar þróunaraðstoðar sem ÞSSÍ veitir í Monkey Bay.

 

Heilbrigðisástand í Malaví er með því bágbornasta sem gerist í Afríku og eru lífslíkur þar í landi einungis 38 ár í samanburði við um 80 ár á Íslandi. Barnadauði er afar tíður og látast um 190 börn á hverja 100.000 íbúa fyrir fimm ára aldur, en á Íslandi deyja einungis um 3-4 börn á hverja 100.000 íbúa. Íslensk rannsókn sýnir að konur í Malaví nota þjónustu mæðraverndar í ríkum mæli, en fæðingarhjálp er oftast veitt á heimaslóðum við bágbornar aðstæður með hjálp aðstandenda og yfirsetukvenna. Eitt af þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, sem samþykkt var árið 2000, er að draga verulega úr barnadauða í þróunarríkjunum.

 

 





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica