Íslendingar og Norðmenn skrifa undir þríhliða samning við stjórnvöld í Mósambík
- fyrsta samfjármögnun Íslendinga í þróunarsamvinnu
Fulltrúar mósambískra, norskra og íslenskra stjórnvalda endurnýjuðu í morgun samkomulag um samvinnu í fiskimálum til næstu fjögurra ára. Samkomulagið felur í sér fyrstu samfjármögnun Íslendinga í þróunarsamvinnu en bæði Norðmenn og Íslendingar hafa stutt við fiskimál í Mósambík um langt skeið með tæknilegri og fjárhagslegri aðstoð. Sighvatur Björgvinsson framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands skrifaði undir samninginn fyrir Íslands hönd í Mapútó, höfuðborg Mósambík.
Ríkin þrjú koma sameiginlega að áætlun um aðstoð við fiskigeirann í Mósambík með framlagi sem nemur 27,7 milljónum Bandaríkjadala, um þremur og hálfum milljarði íslenskra króna. Framlag Íslands í verkefninu nemur um 16%. Fjármögnunin byggir á þríhliða samningnum sem skrifað var undir í morgun og kveður á um sameiginlega fjármögnun ríkjanna þriggja.
Fjármagnið verður nýtt til að styrkja getu og færni stjórnsýslunnar á ýmsum sviðum fiskimála, s.s. með rannsóknum, gæðastjórnun, þjálfun og stjórnun fiskveiða ásamt því að bæta lífsskilyrði í fiskimannaþorpum og styðja við lítil og meðalstór fyrirtæki í fiskigeiranum.
Að sögn Guðmundar Vals Stefánssonar verkefnisstjóra fiskimála á umdæmisskrifstofu ÞSSÍ í Mósambík verða verkefni á þessu sviði sem unnið hefur verið að á undanförnum árum hluti af nýja norsk-íslenska verkefninu. Þar er m.a. um að ræða þróun gæðamála í fiskvinnslu, þróun eftirlitsstofnunar, þróun og uppbygging á rannsóknastofum, þjálfun í meðhöndlun sjávarfangs og menntun í ýmsum sjávarútvegstengdum greinum.
Guðmundur Valur segir að reikna megi með aukinni samvinnu milli þeirra stofnanna sem tilheyra sjávarútvegsráðuneytinu og nefnir sem dæmi samstarf við Smábátasambandið. Það er félag sjómanna á landsvísu sem hefur það markmið að auka velmegun og minnka fátækt meðal þeirra sem tengjast sjávarútvegi í landinu en það mun vera um hálf milljón íbúa Mósambík. “Smábátasambandið hefur milligöngu við undirbúning á námskeiðum í ýmsum greinum víðs vegar um landið, svo sem í gerla- og hreinlætisfræðum, gæðastjórnun og rekjanleikastjórnun. Fiskiskóli Mósambík ber ábyrgð á kennslunni en ÞSSÍ hefur á síðustu árum stutt skólann við að þróa þessi námskeið og gefa út námsefni. Þegar er búið er að halda 22 námskeið og gefa út 496 prófskírteini. Þessu verður nú haldið áfram á fullum krafti,” segir Guðmundur Valur.
Fréttatilkynning sjávarútvegsráðuneytis Mósambík (portúgalska)




Rauðarárstígur 27, 125 Reykjavík, sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is