Tölvubúnaður afhentur til að bæta upplýsingar um löndun sjávarfangs

-formleg lok á samstarfsverkefni ÞSSÍ og sjávarútvegsráðuneytis Namibíu

18.11.2009

Nýr tölvubúnaður
Nýr tölvubúnaður
Þrátt fyrir ánægju með nýja kerfið var ekki laust við trega þegar afhending átti sér stað, segir umdæmisstjóri ÞSSÍ í Namibiu. Ljósmynd: Vilhjálmur Wiium.

Þróunarsamvinnustofnun Íslands afhenti á dögunum sjávarútvegsráðuneyti Namibíu tuttugu og fimm lófatölvur ásamt fylgihlutum. Markaði afhendingin formleg lok á samstarfsverkefni ÞSSÍ og ráðuneytisins, en verkefnið fólst í að bæta öflun löndunarupplýsinga á fiski veiddum undan ströndum Namibíu.

Að sögn Vilhjáms Wiium umdæmisstjóra ÞSSÍ í Namibíu er sjávarútvegur mikilvæg atvinnugrein í Namibíu og gildir þar einu hvort horft er til tekna, atvinnu eða gjaldeyrisöflunar. Hann segir að um fimmtungur útflutningstekna landsins komi frá sjávarútvegi og nær sex hundraðshlutar af landframleiðslu eigi rætur að rekja til útvegs.

“Namibía hefur líka þá sérstöðu meðal þjóða að innheimta auðlindagjalds í sjávarútvegi skilar þó nokkrum tekjum í ríkiskassann, mun meiri en útgjöld namibíska ríkisins vegna hafrannsókna og eftirlits með útveginum. Auðlindagjaldið er þó ekki einungis tekjuöflunartæki. Inn í það eru byggðir ýmsir hvatar, t.d. borga útgerðir lægra gjald ef siglt er með afla í land til vinnslu frekar en að vinna hann úti á sjó. Gjald þetta hefur því gagnast namibískum stjórnvöldum vel við að ná fram ýmsum markmiðum sem þau hafa sett í sjávarútvegsgeiranum. Auðlindagjaldið fer eftir magni afla og einnig hvernig aflinn er unninn. Því skiptir miklu fyrir stjórnvöld að hafa réttar aflatölur. Þar hefur hins vegar verið pottur brotinn. Fyrir tveimur árum kom beiðni frá namibískum yfirvöldum þar sem ÞSSÍ var beðið um aðstoð við að betrumbæta öflun löndunartalna. ÞSSÍ hefur unnið mörg verkefni með namibíska ráðuneytinu og var þetta verkefni eðlilegt framhald fyrra samstarfs. Voru fengnir íslenskur sérfræðingur, Baldvin Baldvinsson frá Fiskistofu, og handPoint, íslenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í notkun lófatölva, til að veita ráðgjöf og hanna kerfi sem hentar aðstæðum í Namibíu. Er skemmst frá að segja nú er búið að þróa kerfið og er verið er að hleypa því af stokkunum. Það lofar góðu.”

Vilhjálmur segir að þar sem íslensk stjórnvöld hafi ákveðið að hætta þróunarsamvinnu við Namibíu frá og með árslokum 2010 bendi allt til að þetta verði síðasta samstarfsverkefni ÞSSÍ og namibíska sjávarútvegsráðuneytisins. “Þrátt fyrir ánægju með nýja kerfið var ekki laust við trega þegar afhending átti sér stað,” segir Vilhjálmur. “Namibíski ráðuneytisstjórinn, Frans Tsheehama, fór fögrum orðum um þátt Íslands í uppbyggingu namibísks sjávarútvegs og að Íslendinga yrði sárt saknað í landinu þegar samstarfinu endanlega lyki.”





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica