Fullorðinnafræðsla fær aukið vægi í Malaví

9.12.2009

Aukin áhersla á fullorðinnafræðslu
Aukin áhersla á fullorðinnafræðslu
Forseti Malaví vill leggja meiri áherslu en verið hefur á fullorðinnafræðslu. Þróunarsamvinnustofnun sinnir slíkri fræðslu í þremur samstarfsríkjum, Malaví, Úganda og Mósambík. Ljósmynd: Guffi.

Átta hundruð milljónir manna í heiminum eru ólæsar að því er fram kemur í nýrri alþjóðlegri skýrslu um fullorðinnafræðslu. Skýrslan kom út á CONFINTEA ráðstefnununni í Brasilíu á dögunum en um er að ræða alþjóðaráðstefnu á vegum UNESCO sem haldin er á tólf ára fresti um fullorðinnafræðslu. Í skýrslunni kemur fram að í Afríku eru 164 milljónir manna ólæsar þar af 102 milljónir kvenna.

Þróunarsamvinnustofnun Íslands sinnir fullorðinnafræðslu í þremur samstarfslöndum, Malaví, Úganda og Mósambík. "Hér í Malaví hefur fullorðinnafræðslan lengi fengið lítið opinbert fjármagn," segir Jó Tore Berg verkefnisstjóri ÞSSÍ. "Það horfir þó til betri vegar því forseti landsins hefur sagt að hann vilji leggja meiri áherslu á fullorðinnafræðslu. Nýlega hleypti t.d. ráðuneyti jafnréttismála af stokkunum átaki sem kallað er "Mass Adult Literacy Project" og starfsmenn ríkisins sem vinna við fullorðinnafræðslu hér í Nankumba eru í þessari viku á fræðslunámskeiði um átakið."

Þróunarsamvinnustofnun býður upp á fullorðinnafræðslu í flestum þorpum í Nankumba sem er hluti af Mangochi héraði í sunnanverðu landinu. Að sögn Jó Tore skilgreinir héraðsstjórnin ólæsi sem þriðja mikilvægasta úrlausnarefnið í héraðinu, á eftir fæðuöryggi og takmörkuðu aðgengi að góðri menntun. Hann segir að leshringirnir í Nankumba séu nú orðnir 94 en fullorðinnafræðsluverkefnin eru samstarfsverkefni ÞSSÍ og malavískra stjórnvalda.

"Það er mikill áhugi á félagsmiðstöðinni sem við höfum byggt í Monkey Bay bæði í héraðinu og í ráðuneytinu í Lilongwe," segir Jó Tore. "Við erum sérlega ánægð með að Þjóðarbókhlaðan (National Library) ætlar að stofna og reka útibú i húsnæðinu. Þetta verður fyrsta almennilega bókasafnið í Monkey Bay og mikilvæg hvatning til að viðhalda lestrarkunnáttu. Við erum líka nýbúin að vera með samkeppni fyrir leiðbeinendur og þátttakendur í leshringjunum um að skrifa góðar sögur. Það komu margar góðar og skemmtilegar sögur og verið er að fara yfir og velja besta sögurnar. Við munum síðan prenta og dreifa þessum sögum í bókakassana sem eru í öllum leshringjunum."

Jó Tore segir að eitt ár sé eftir af verkefninu. "Því miður getum við ekki gert eins mikið og við hefðum viljað gera næsta ár vegna niðurskurðar hjá ÞSSÍ og við getum því ekki gert allt sem verkefnisskjalið kveður á um," segir hann.

Skýrsla UNESCO

Samantekt um skýrsluna

Fullorðinnafræðsluverkefnin í Malaví



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica