Úganda: Gott dæmi um árangursríkt samstarf að mati heimamanna

16.12.2009

Fullorðinnafræðsla
Fullorðinnafræðsla
Að mati stjórnvalda í Úganda hefur samtarf við Íslendinga um fræðslu fullorðinna heppnast með ágætum. Ljósmynd: Ágústa Gísladóttir.

Samstarfsverkefni Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og stjórnvalda í Úganda í fullorðinnafræðslu í eyjasamfélögum á Viktoríuvatni var sérstaklega nefnt sem gott dæmi um árangursríkt samstarf á árlegri ráðstefnu um samfélagsþróun í Úganda sem haldin var á dögunum. Að sögn Geirs Oddssonar verkefnastjóra ÞSSÍ í Kampala eru stjórnvöld að breyta áherslum í fullorðinnafræðslu og ætla að leggja aukna áherslu á samþættingu þeirrar fræðslu við sem flesta geira samfélagsins.

Geir segir að fram að þessu hafi mesta áherslan verið á að auka læsi fullorðinna með hefðbundinni fullorðinnafræðslu til að gera fólki kleift að verða virkir þátttkendur í samfélaginu. "Á ráðstefnunni um daginn kom skýrt fram að í þeim samfélögum sem bjóða upp á FALP (Functional Adult Literacy Programme) þar sem lögð er áhersla á hagnýta fullorðinnafræðslu eru merkjanlega miklu virkari þátttakendur í sveitastjórnum, félagastarfsemi og atvinnusköpun en þeir sem nýta sér ekki fullorðinnafræðslu."

Unnið er af hálfu stjórnvalda í Úganda að endurskoðun stefnu og aðgerðaáætlun um fullorðinnafræðslu og ÞSSÍ styður við þau verkefni að sögn Geirs bæði með fjármagni og sérfræðiþekkingu. "Sérfræðingar okkar, Maria Nandango og Lilian Asaba, starfa með starfshópi á vegum ráðuneytis kynjamála, vinnumála og félagslegrar þróunar, en Maria hefur nýlega gert athyglisverða rannsókn á árangri FALP í fiskisamfélögum á eyjum í Viktoríuvatni, þar sem hún lýsir því sem kalla mætti geirasértækri (sector specific) nálgun í fullorðinsfræðslu í Úganda," segir Geir.

Fullorðinnafræðsluverkefni ÞSSÍ á eyjunum í Mukono héraði lýkur núna um áramótin en verkefninu í Kalangala héraði lýkur um þar næstu áramót. "Að mínum dómi er þetta kjörinn tímapunktur til að endurskoða form stuðnings ÞSSÍ við fullorðinnafræðsluna í Úganda. Sú leið sem stjórnvöld hafa óskað eftir að ÞSSÍ fylgi er að styðja þessa fræðslu í auknum mæli í gegnum ráðuneytið í formi skilgreinds geirstuðnings, þetta samræmist nýjum áherslum stjórnvalda. Rauður þráður í öllu samstarfi ÞSSÍ í Úganda er þjálfun og þekkingaruppbygging, sérstaklega meðal fiskisamfélaga þar sem eru einhverjir mestu jaðarhópar samfélagsins."

Skýrsla Mariu Nandango

Fullorðinsfræðsla í eyjasamfélögum í Mukono héraði (ÞSSÍ)

ICEIDA Support to Implementation of Uganda FALP in the Island Sub-Counties of Mukono District 2005-2009





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica