Svíar vilja auka þróunaraðstoð á sviði heilbrigðismála

Bágt heilsufar kvenna gífurlegt vandamál

4.11.2004

Sænsk stjórnvöld ætla að beita sér fyrir því á næsta ári að framlög alþjóðasamfélagsins til heilbrigðismála í þróunarlöndunum verði aukin. Svíar vilja beina athyglinni sérstaklega að heilsu kvenna, kynheilbrigði þeirra, fæðingarhjálp og mæðravernd. Bágt heilsufar kvenna er gríðarlegt vandamál í þróunarlöndunum og er dánartíðni vegna smitsjúkdóma, barnsburðar og vannæringar afar há.

 

Í viðtali við mánaðarritið Development Today, sem fjallar um þróunaraðstoð Norðurlandanna, segir Harald Friis hjá sænska heilbrigðisráðuneytinu að svo virðist sem minni áhersla sé nú lögð á heilbrigðismál en áður, mál sem snerti konur og börn sérstaklega fái alltof litla athygli. Segir hann jafnframt að vilji sér fyrir því hjá sænskum stjórnvöldum að snúa þeirri þróun við enda sé það lykilatriði í baráttunni gegn fátækt að konur geti alið önn fyrir börnum sínum og heilbrigðismál gegni afar mikilvægu hlutverki í því sambandi.

 

Fyrir tíu árum var samþykkt á ráðstefnu í Kaíró í Egyptalandi að hlúa ætti sérstaklega að málefnum er tengdust fjölskyldunni, var meðal annars rætt um í því sambandi að efla þyrfti kynheilbrigði kvenna, fæðingarhjálp og mæðravernd. 179 ríki komu að samþykktinni sem fól meðal annars í sér loforð gjafalanda (donors) um að leggja allt að þriðjungi þess fjár sem á þyrfti að halda til verkefna í þessum málaflokki.

 

Mannfjöldastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) fullyrðir að raunin hafi hins vegar orðið sú að aðeins um helmingur þess fjár sem eyrnamerktur var málefninu hafi skilað sér. Hefur stofnunin upplýst að af þeim rúmum 6 milljörðum bandaríkjadala sem lofað var að myndu renna til verkefna á sviði fjölskyldu- og heilbrigðismála fyrir árið 2005 hafi aðeins um 3 milljörðum verið eytt í málaflokkinn. 

 

Svíar halda því fram að ekki verði unnt að ná þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um þróun ef áfram verður litið framhjá þessu mikilvæga máli. Þeir ætla að beita sér fyrir því að ráðherrafundur takið það til umfjöllunar á vormánuðum 2005.        





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica