Norræni Þróunarsjóðurinn skoðar samstarf við Íslendinga í jarðhitamálum
"Sendinefndin hreifst mjög af getu Íslendinga á sviði jarðhitamála og miklum árangri jarðhitaverkefnis Jarðhitaskóla háskóla Sameinuðu þjóðanna," segir Helge Semb framkvæmdastjóri Norræna þróunarsjóðsins.
Sendinefnd á vegum sjóðsins var hér á landi á dögunum. Helgi segir að nefndin hafi komið í þeim tilgangi að kynna sér reynslu Íslendinga í jarðhitamálum. "Við höfðum sérstakan áhuga á Þróunarsamvinnustofnun Íslands vegna orkuverkefnisins í Níkaragva en sjóðurinn hefur uppi áform um verkefni þar á sviði jarðhita," segir hann.
Norræni þróunarsjóðurinn hefur gengið í gegnum endurnýjun lífdaga. Um tíma leit út fyrir að sjóðurinn yrði lagður niður en síðastliðið vor var tekin tekin ákvörðun um að í framtíðinni veiti sjóðurinn styrki til verkefna sem tengjast lofstlagsmálum í fátækum ríkjum. Áður hafði NDF stutt efnahagslega og félagslega uppbyggingu í þróunarríkjunum í formi víkjandi lána.
Að beiðni NDF skipulagði Þróunarsamvinnustofnun dagskrá í heimsókn sendinefndarinnar til Íslands en fulltrúar sjóðsins áttu fundi með fulltrúum utanríkisráðuneytisins, ÞSSÍ, Íslenskum Orkurannsóknum (ÍSOR) og Jarðhitaskóla háskóla Sameinuðu þjóðanna. "Við ræddum hugmyndir um hagnýta samvinnu milli Íslands og NDF, meðal annars hugsanlega samfjármögnum um svæðisbundin þjálfunarsetur í Mið-Ameríku og Austur-Afríku. Einnig hitti sendinefndin að máli fulltrúa einkafyrirtækja og frá háskólasamfélaginu," segir Helge.
Í nýútkomnu fréttabréfi NDF segir Helge að það sé ánægjulegt fyrir NDF að hefja starfsemi á sviði fjárfestinga sem tengjast loftlagsbreytingum í fátækustu löndum heims með því að fjármagna fjölda mikilvægra verkefna. "Loftlagsbreytingunum fylgja veruleg vandamál fyrir þessi lönd. NDF getur í ljósi reynslu sinnar og samstarfs við aðra fjármögnunaraðila stutt þróunarlöndin við að takast á við loftlagsvandamálin," segir í fréttabréfinu.
NDF getur veitt 27 fátækustu ríkjum heims í Afríku, Asíu og Suður-Ameríku fjárstuðning. Fyrir utan að vera skilgreind sem lágtekjulönd verða þau jafnframt að hafa þegið styrk áður frá NDF. Styrkirnir geta verið á bilinu frá 500 þúsundum evra til 4 milljóna evra.




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is