Fréttir
Ný fæðingarálma rís í Monkey Bay
Ný fæðingarálma í Monkey Bay
Myndin var tekin þegar unnið var að byggingu nýrrar fæðingarálmu við sjúkrahúsið í Monkey Bay. Ljósmynd: Stefán Jón Hafstein.

Afar gagnleg verkefni fyrir uppbyggingu og þróun í Apaflóa

Glúmur Baldvinsson skrifar frá Malaví

4.2.2010

Nýkjörinn þingmaður Apaflóa (Monkey Bay) kjördæmis í Mangochi héraði í Malaví, Ralph Jooma, heimsótti nýverið starfsfólk ÞSSÍ á svæðinu og kynnti sér þróunarverkefnin sem þar eru unnin í samstarfi við heimamenn. Við það tækifæri sagðist þingmaðurinn hafa orðið var við mikla ánægju íbúa á svæðinu með störf ÞSSÍ sem hann taldi ekki bara sýnileg heldur afar gagnleg fyrir uppbyggingu og þróun í Apaflóa.
 
Verkefnin sem um ræðir eru heilsugæsluverkefni, vatns- og hreinlætisverkefni og félagsleg verkefni með sérstakri áherslu á fullorðinsfræðslu og læsi. Ríflega 110 þúsund manns byggja svæðið.
 
Dauðsföllum í Apaflóa fækkar
Jooma var kjörinn á þing í maí 2009 og er formaður fjárlaganefndar þingsins. Eftir stutta viðkynningu og kynningarfund með starfsmönnum ÞSSÍ, þar á meðal Glúmi Baldvinssyni, verkefnisstjóra vatns- og hreinlætismála, og Jo Tore Berg, verkefnisstjóra félagslegra verkefna, var haldið í skoðunarleiðangur um svæðið. Fyrst var heimsóttur spítalinn í Apaflóa sem byggður var af ÞSSÍ. Jooma sagði tilkomu spítalans hafa gjörbylt heilsugæslu í Apaflóa til hins betra. Áður hefðu íbúar leitað hefðbundinna læknisúrræða sem kostað hefði margan lífið. Með aukinni ásókn í spítalann hefði dregið verulega úr dauðsföllum. Vonaðist Jooma til að ÞSSÍ gæti komið að uppbyggingu smærri heilsugæslustöðva í einangruðustu sveitum Apaflóa.
 
Hópurinn skoðaði því næst vatnsból og hreinlætisaðstöðu í tveimur þorpum en verkefnið er komið langt á veg með að tryggja nær öllum íbúum Apaflóa aðgang að hreinu vatni. Jooma var sérstaklega hrifinn af þeirri aðferðafræði verkefnisins sem miðar að hámarksþátttöku íbúanna sjálfra í greftri, frágangi og viðhaldi brunna sem og áherslu á að íbúar komi sér upp sómasamlegri hreinlætisaðstöðu áður heldur en vatnsból eru afhent þeim til eignar. Þingmaðurinn lýsti yfir vilja til að starfa náið með ÞSSÍ til að tryggja að markmiðið um að allir íbúar svæðisins hafi aðgang að ómenguðu og neysluhæfu vatni næðist fyrir árslok 2010.
 
Þróunarsetur og kennarahúsnæði
Félagsleg verkefni voru næst á dagskrá. Komið var við í nýbyggðu þróunarsetri (resource centre) í hjarta Apaflóa. Fullorðinsfræðsla mun fara þar fram og hýsir setrið einnig veglegt bókasafn. Setrinu er ætlað að vera eins konar félagsmiðstöð sem rekin er af íbúunum sjálfum og vettvangur fyrir þá til að taka þátt í þróun hugmynda um áframhaldandi uppbyggingu í Apaflóa. Setrið á einnig að vera vettvangur fyrir þátttakendur til að tileinka sér hinar ýmsu iðngreinar, nema landbúnað og brunnagerð svo eitthvað sé nefnt.
 
Að lokum heimsótti hópurinn hænsnabú sem er hluti af lífsviðurværisverkefni og nýbyggt kennarahúsnæði sem leshringur á svæðinu hafði alfarið frumkvæði að. Enda er það tilgangur leshringja að bera kennsl á ýmis félagsleg vandamál og finna lausnir. Skortur á kennurum í dreifbýli er landlægt vandamál í Malaví. Mörg dæmi eru um að einn kennari sinni hundrað nemendum. Ein helsta ástæðan fyrir kennaraeklu er skortur á húsnæði við skóla í sveitum. Þess vegna sækjast kennarar fremur eftir störfum í þéttbýli.

Myndband frá verkefnum ÞSSÍ í Mangochi-héraði, eftir Stefán Jón Hafstein umdæmisstjóra ÞSSÍ




Þetta vefsvæði byggir á Eplica