Við eigum að sinna fiskimannasamfélögum
-viðtal við Árna Helgason umdæmisstjóra ÞSSÍ í Kampala
„Almennt talað tel ég að auðlindamál, umhverfismál og þar með talin loftslagsmál eigi að vera þungamiðja í þróunarsamvinnu okkar. Ég er líka hlynntur því að við styðjum samfélagsþróun og ef við veljum að einbeita okkur að tilteknum svæðum í því sambandi er nærtækast fyrir okkur Íslendinga að líta til fiskimannasamfélaganna. Við eigum ekki að líta á fiskimál í þröngum tæknilegum skilningi heldur að einbeita okkur að verklagi sem við höfum reynslu af í Úganda og Malaví: að horfa á fiskimannasamfélögin og styðja þau. Fiskurinn, veiðarnar og vinnslan eiga ekki endilega að vera í öndvegi heldur samfélögin sem hafa lífsviðurværi sitt af því að veiða og verka fisk. Í samstarfslöndum okkar eru fiskimannasamfélögin þau fátækustu og þar höfum við verk að vinna. Við eigum að reyna að sinna þeim."
Það er Árni Helgason umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Úganda sem hefur orðið.
Viðtalið í heild:
„Þurfum að finna íslenskan möskva í þessu stóra neti" - rætt við Árna Helgason umdæmisstjóra ÞSSÍ í Úganda




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is