Innlendir verkefnisfulltrúar ráðnir í auknum mæli

- Viðtal við Geir Oddsson verkefnastjóra ÞSSÍ í Úganda

18.3.2010

Geir Oddsson verkefnisstjóri ÞSSÍ í Úganda
Geir Oddsson verkefnisstjóri ÞSSÍ í Úganda

Innlendir verkefnisfulltrúar hafa í auknum mæli verið ráðnir til starfa til starfa á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Úganda. Aðeins einn íslenskur verkefnastjóri, Geir Oddsson auðlindafræðingur, er starfandi á umdæmisskrifstofunni í Kampala, en Drífa H. Kristjánsdóttir er verkefnastjóri þróunarverkefna í fiskimannasamfélögum úti á eyjum Kalangala héraðs í Viktoríuvatni. Bæði Drífa og Geir sinna fyrst og fremst eftirliti og eftirfylgni fremur en beinni framkvæmd verkefna. 
 
"Þessi breyting samræmist þeirri meginbreytingu að veitendur þróunaraðstoðar hafa í síauknum mæli breytt verklagi sínu frá því að framkvæma verkefnin sjálfir með beinum verkefnastuðningi, eigin umsýslu og framkvæmd verkefna, yfir í að veita svokallaðan fjárlagastuðning, styðja ákveðna geira eða fjármagna skilgreind verkefni ákveðinna stofnana samtarfslandsins. Og þá nota þeir innlend kerfi við veitingu og eftirlit með aðstoðinni. Þetta þýðir að hlutverk útsendra starfsmanna veitenda þróunaraðstoðar verður fyrst og fremst eftirlit með framkvæmd og árangri. Þessi breyting sem hefur orðið hjá ÞSSÍ í Úganda færir okkur nær því að uppfylla skuldbindingar okkar gagnvart ákvæðum Parísaryfirlýsingarinnar og Accra samþykktarinnar um aðlögun, samhæfingu, lækkun kostnaðar og árangur," segir Geir í samtali við Veftímaritið. "Það skapaðist tækifæri til að breyta fyrirkomulaginu hér í Úganda á síðasta ári. Þá kláruðu tveir íslenskir verkefnastjórar samninga sína og ég var ráðinn í þetta nýja hlutverk, eftir að hafa lokað umdæmisskrifstofunni í Níkaragva síðastliðið sumar."

Viðtalið við Geir má lesa hér, í nýjasta Veftímariti ÞSSÍ





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica