Úrhelli hefur áhrif á kosningaþátttöku

Nýr forseti kjörinn í Namibíu

16.11.2004

Úrhellisrigning í Namibíu hefur valdið því að forseta- og þingkosningar í landinu fóru treglega af stað. Kosningarnar standa yfir í tvo daga, 15. og 16. nóvember. Leiðtogaskipti fara fram í fyrsta sinn síðan landið fékk sjálfstæði 1990, en ekki er búist við stjórnarfarsbreytingum og munu forsetaskiptin því engin áhrif hafa á störf Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) í Namibíu.

Sam Nujoma fráfarandi forseti Namibíu var fyrstur manna til að greiða atkvæði sitt í kosningunum. Nujoma hefur verið í embætti frá því landið hlaut sjálfstæði en hann var frelsishetja sem barðist í nær þrjá áratugi fyrir afnámi aðskilnaðarstefnunar og gegn yfirráðum Suður - Afríku stjórnar í landinu. Hifikepunye Pohamba eftirmaður Nujoma í forsetastóli hefur verið náinn samstarfsmaður hans í Swapo, sem er ráðandi stjórnmálaafl í Namibíu. Pohamba hefur heitið því að stjórnað verði í anda Nujoma og að engar meiriháttar breytingar verði gerðar. Fráfarandi forseti verður reyndar áfram við stjórnvölinn að nokkru leyti þar sem hann mun áfram gegna formennsku í Swapo.

 

Í kosningunum að þessu sinni velja Namibíumenn sér ekki aðeins nýjan forseta heldur kjósa þeir einnig 72 fulltrúa til þingsetu og er fyrirséð að Swapo haldi áfram sterkum meirihluta.  Um ein milljón manna er á kjörskrá í landinu, en áætlað er að íbúar séu samtals um 1.8 milljónir. Kosningarnar eru þær þriðju sem haldnar eru í Namibíu síðan landið hlaut sjálfstæði.  





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica