"Erum að gera mjög góða hluti í þróunarmálum fyrir Úganda"
- viðtal við Leah Sepuya skrifstofustjóra ÞSSÍ í Kampala
"Ég hef tekið eftir því þá fáeinu mánuði sem ég hef starfað með Þróunarsamvinnustofnun Íslands að verklagið mótast afskaplega mikið af árangri og ábyrgð," segir Leah Sepuya skrifstofustjóri umdæmisskrifstofu ÞSSÍ í Kampala en hún tók við því starfi seint á síðasta ári. "Ég er þeirrar skoðunar að við séum að gera mjög góða hluti í þróunarmálum fyrir Úganda og hópurinn er einbeittur og telur ekki eftir sér að leggja á sig aukalega til þess að ná árangri í starfi með grasrótinni, jafnvel í afskekktustu héruðum landsins."
Leah Sepuya er 25 ára, yngsta barn móður sem eignaðist fjögur börn, tvo drengi og tvær stúlkur. Leah segir að hún hafi misst föður sinn ungan, þegar hún var þriggja ára, og því hafi það komið í hlut móðurinnar einnar að ala önn fyrir börnunum. Eftir grunn-og framhaldsskólagöngu lá leið hennar í Kyambogo háskólann þar sem hún lauk BA námi í stjórnsýslufræðum og hún stefnir að því að ljúka MBA námi síðar á árinu.
Allt viðtalið við Leuh má lesa hér í nýjasta veftímariti ÞSSÍ




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is