Íslendingar og Norðmenn taka þátt í aðgerðum gegn ólöglegum fiskveiðum
Ólöglegar fiskveiðar, bæði við strendur Afríku og í vötnum álfunnar, fela í sér stórkostlegan tekjumissi fyrir fátæka íbúa. Í nýrri grein eftir Guðmund Val Stefánsson verkefnisstjóra fiskimála í Mósambík gerir hann grein fyir umfangi vandans og leiðum sem ákveðið hefur verið að fara til að bregðast við þessari rányrkju. Verkefnastuðningur ÞSSÍ í samvinnu við utanríkisráðuneyti Noregs í Mósambík er hluti af þessari viðspyrnu gegn ólöglegum og óskráðum fiskveiðum við strendur Afríku.
Guðmundur Valur segir í greinni að í gegnum norsk-íslenska stuðninginn verði meðal annars lögð áhersla á að efla fiskimannasamfélög í Mósambík. "Í flestum þessum samfélögum hafa verið stofnuð samfélagsráð. Þau bera ábyrgð á samvinnu við sjávarútvegsráðuneytið varðandi innheimtu veiðileyfagjalda og útgáfu fiskveiðiheimilda og kvóta, sinna tilkynningaskyldu og hafa eftirlit með öryggi sjómanna. Ennfremur hafa þau samvinnu við Hafrannsóknarstofnun landsins varðandi skráningu afla við landanir og fylgja eftir notkunarreglum á veiðarfærum. Einnig eru þau milliliðir varðandi framkvæmd um starfsþjálfun sjó- og fiskvinnslufólks í fiskvinnslu og gæðastjórnun og sjá um framkvæmdir eins og að koma upp ísvélum, kælirými og einöngruðum flutningaílátum. Markmiðið er að auka lífsgæði þessa fólks með því að auka nýtni og gæði fiskafurða, lengja líftíma ferskra fiskafurða, ná þannig til mun stærra markaðsvæðis og þar með auka verðmæti afurðanna verulega."
Guðmundur Valur segir að takist vel til leiði þessar aðgerðir til þess að dregið verði úr ólöglegum veiðum og að þá kæmi stærri hluti veiðanlegs afla í hlut fiskimannasamfélaga. Hann getur þess að einstaklingar í þessum samfélögum geti nú stofnað félög og fyrirtæki sem stunda atvinnurekstur, hafa bankareikning og aðgengi að smálánum. Um er að ræða 350 til 450 þúsund manns í umræddum fiskimannasamfélögum í Mósambík.




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is