Ráðstefna um málefni þróunarlanda og þróunaraðstoð Íslands verður haldinn 15. september kl. 13.00 -17.00 í Hátíðarsal Háskóla Íslands

4.9.2003

RÍKAR ÞJÓÐIR OG SNAUÐAR

Ráðstefna um málefni þróunarlanda og þróunaraðstoð Íslands verður haldin 15. september kl. 13.00-17.00 í Hátíðarsal Háskóla íslands.


Ríkar Þjóðir og snauðar (850 kb)


Þróunarsamvinnustofnun Íslands, utanríkisráðuneytið og Háskóli Íslands boða til ráðstefnunnar. Markmið ráðstefnunnar er að vekja athygli á þróunarsamvinnu Íslendinga og málefnum þróunarlanda. Miklar breytingar hafa orðið á samvinnu hinna svokölluðu þróunarlanda og þróaðra ríkja á síðastliðnum árum, bæði hvað varðar stefnu og aðferðir. Á ráðstefnunni verður fjallað um þróunarmál frá alþjóðlegu sjónarhorni, um þróunaraðstoð Íslendinga, tvíhliða aðstoð og marghliða, auk þess sem fulltrúar frjálsra félagasamtaka gera grein fyrir  hlutverki sínu í þróunarsamvinnu.

Páll Skúlason, rektor Háskóla Íslands býður gesti velkomna. Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson mun setja ráðstefnuna og Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, verður fundarstjóri

Sérstakur gestafyrirlesari verður Dr. Jeffrey D. Sachs forstjóri Jarðarstofnunarinnar (The Earth Institute) við Columbiaháskóla í New York og prófessor í þróunarhagfræði og heilbrigðisfræðum við sama skóla. Hann gegnir einnig starfi sem sérlegur ráðgjafi framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, Kofis  Annan, auk þess að hafa verið ráðgjafi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Alþjóðabankans og Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP) meðal annarra mikilvægra starfa.

Dr. Sachs mun fjalla um þróunaraðstoð og hlutskipti þróunarlanda með sérstöku tilliti til þúsaldarmarkmiða Sameinuðu þjóðanna sem samþykkt voru á leiðtogafundi samtakanna haustið 2000. Jónas H. Haralz, fyrrverandi bankastjóri mun fjalla um íslenska þróunaraðstoð og nefnist erindi hans, Milli bjargálna og þroska, Þorvaldur Gylfason, prófessor mun halda erindi um   auðlindir, lýðræði og hagþróun og Gísli Pálsson umdæmisstjóri ÞSSÍ í Namibíu flytur erindi um tvíhliða þróunaraðstoð og aðferðir sem henta smáríki eins og Íslandi.
 Hermann Ingólfsson,  aðstoðarmaður aðalfulltrúa Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í stjórn Alþjóðabankans, mun fjalla um  hlut Íslands í fjölþjóðlegu samstarfi og Nína Helgadóttir verkefnastjóri hjá Rauða krossi Íslands flytur fyrirlestur um hlutverk  frjálsra félagasamtaka í þróunarsamvinnu, fyrir hönd Rauða kross Íslands og Hjálparstarfs kirkjunnar.  

Ráðstefnunni lýkur með pallborðsumræðum.  Þátttakendum er boðið til móttöku á vegum utanríkisráðuneytisins í anddyri Háskóla Íslands við lok ráðstefnunnar.

Ráðstefnan er öllum opin.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica