Áhyggjur vegna kosninga í Mósambík
Kosningaeftirlitsmenn fá ekki að fylgjast með gangi mála á öllum stigum
Evrópusambandið og lýðræðisstofnun Jimmy Carters fyrrverandi Bandaríkjaforseta segja teikn á lofti um að reglum um lýðræðislegar kosningar verði ekki framfylgt í komandi forseta- og þingkosningum í Mósambík. Áhyggjur manna beinast að tveimur þáttum, annars vegar fá kosningaeftirlitsmenn ekki fullan aðgang að herbergjum þar sem skráning atkvæða í tölvur fer fram og hins vegar verður þeim meinað að fylgjast með fundum landskjörstjórnar þegar endurskoðun vafaatkvæða fer fram. Fjöldi kosningaeftirlitsmanna verður viðstaddur kosningarnar sem fram fara 1. og 2. desember.
Kosningaeftirlitsmenn frá SADC löndunum, Sambands ríkja í sunnanverðri Afríku, eru komnir til Mósambík, en síðustu vikur hafa vestrænir eftirlitsaðilar einnig verið í landinu til að fylgjast með undanfara kosninganna. Í yfirlýsingu frá lýðræðisstofnun Jimmy Carters, sem hefur umsjón með kosningaeftirlitinu að hluta, segir að þrátt fyrir endurskoðun kosningareglna séu enn í gildi ákvæði sem valda því að draga megi framkvæmd komandi kosninga í efa. Evrópusambandið hafði áður gefið út svipaða yfirlýsingu en það sendir einnig fjölda fólks til að fylgjast með framgangi mála.
Átta menn í framboði til embættis forseta landsins og 25 flokkar bjóða fram fulltrúa til þingsetu. Hins vegar eru aðeins tveir flokkar sem hafa verulegt fylgi í landinu. Frelimo, sem hefur haldið um stjórnartaumana frá því landið fékk sjálfstæði 1975, er spáð sigri sem endranær. Stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn Renamo hefur hins vegar mikið fylgi á landsbyggðinni og hefur verið mikil spenna í landinu frá því kosningabaráttan hófst formlega. Aðeins einn flokkur fyrir utan Frelimo og Renamo er talinn líklegur til að koma manni að á þinginu en það er Friðar-, lýðræðis- og þróunarflokkurinn (PDD). Joaquim Chissano núverandi forseti og leiðtogi Frelimo lætur af embætti, en því hefur hann gengt frá árinu 1986. Forsetinn má aðeins sitja í tvö kjörtímabil samkvæmt landslögum.
Átta milljónir manna eru á kjörskrá í Mósambík en kjörstaðir eru 60 þúsund í 11 kjördæmum. Talning atkvæða er flókin framkvæmd því flytja þarf fjölda kjörgagna frá afskekktum héruðum til þéttbýlisstaða. Einnig verða öll gögn skráð og þeim komið í tölvutækt form. Gert er ráð fyrir að talning hefjist á nokkrum stöðum um leið og kjörstöðum hefur verið lokað en hins vegar munu niðurstöður ekki liggja fyrir fyrr en mörgum dögum síðar. Landskjörstjórn hefur frest til 17. desembert til að kynna endanleg úrslit.
Byggt á greinum af vefsíðu www.allAfrica.com



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is