Stuðningur við samþættingu fullorðinnafræðslu í Úganda

17.4.2010

Samþætting fullorðinnafræðsluFullorðinnafræðsla hefur lengi verið snar þáttur í starfsemi Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Úganda. Framkvæmd hennar hefur tekið nokkrum breytingum á síðustu misserum að sögn Geir Oddssonar sem fer með þann málaflokk á umdæmisskrifstofunni í Kampala.

„Stjórnvöld í Úganda hafa tekið ákvörðun um að samþætta fræðslu og menntun fullorðinna í öllum geirum og félagsmálaráðuneytið (Ministry of Gender, Labor and Social Development) heldur utan um þá samþættingu," segir Geir. „Við höfum unnið með ráðuneytinu um árabil að stefnumótun fullorðinnafræðslu, en í lok síðasta árs var byrjað að vinna með ráðuneytinu í að móta nýja stefnu og aðgerðaáætlun í fullorðinnafræðslu hér í Úganda með samþættinguna í huga. Það er líklegt að stuðningur við framkvæmd hennar verði aðaláhersla ÞSSÍ á þessu sviði í náinni framtíð. Það mun meðal annars skapast svigrúm til þess að styðja stefnu úgandískra stjórnvalda í gegnum ráðuneytið þar sem stuðningi okkar við framkvæmd fullorðinnafræðslu í Mukono héraði lauk um síðustu áramót og í Kalnagala héraði lýkur stuðningi okkar um næstu áramót. Þetta er einn þátturinn í þeirri viðleitni okkar að færa starfsemina frá beinum verkefnastuðningi."
 
Að sögn Geirs er meginmarkmiðið með samþættingunni að gera fullorðinsfræðslu aðgengilegri með þeim hætti að framboðið svari eftirspurninni. „Fyrir viðtakandann skiptir þetta miklu máli, það hefur verið sýnt fram á að fullorðinnafræðsla gegnir lykilhlutverki í því að auka aðgengi íbúa að margvíslegum upplýsingum, sem eykur möguleika þeirra til að bæta lífskjör og afkomu og taka virkan þátt í ýmiskonar uppbyggingar og þróunarstarfi í sinni heimabyggð," segir Geir.
 
Fullorðinnafræðsla í Úganda (Functional Adult Literacy, FAL) hefur þróast í þá átt að áherslan er ekki síst á lesfærni tengda tekjuöflun og atvinnusköpun, að sögn Geirs. Hann nefndir í því sambandi rekstur lítilla fyrirtækja eða aukna lesfærni sem gerir þátttakendum kleift að styðja börn sín í námi. „Læsi er hluti af daglegu líf, verkfæri til að takast á við dagleg viðfangsefni þar sem læsi kemur að gagni," segir hann. „Stjórnvöld stefna að því að styrkja enn frekar fullorðinnafræðslu í Úganda með auknu framboði fræðslu sem samsvarar fjölmörgum áhugasviðum þátttakenda. Með þessu hyggjast þau auka árangur og áhrif fullorðinnafræðslu í landinu. Ný stefna stjórnvalda hefur þetta að markmiði og ÞSSÍ hefur nú þegar byrjað að samþætta fullorðinnafræðslu inn í verkefni sín. Má þar nefna fiskgæðaverkefni sem unnið er með fiskimálaráðuneytinu (Quality Assurance for Fisheries Marketing). Í því verkefni er ein megináherslan á að auka vitund og þekkingu fiskisamfélaga á mikilvægi gæða fiskafurða og möguleikum á markaðsetningu. Aðferðin við fræðsluna byggist að miklu leyti á aðferðum fullorðinnafræðslu, sem hafa verið þróaðar í öðrum verkefnum studdum af ÞSSÍ," segir Geir Oddsson.



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica