Ronaldo og Zidane í einvígi gegn fátækt
Ágóði af vinnáttuleik rennur til verkefna í þróunarlöndum
Knattspyrnuhetjurnar Ronaldo og Zinédine Zidane hafa samþykkt að fá skærustu stjörnur íþróttarinnar til að taka þátt í vináttuleik 14. desember næstkomandi í Madríd. Yfirskrift keppninnar er Einvígi gegn fátækt en allur ágóði af leiknum mun renna til uppbyggingar í fátækustu löndum heims. Ronaldo og Zidane eru báðir góðgerðarsendiherrar Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (United Nations Development Programme - UNDP).
Þetta er í annað sinn sem slík keppni er háð, fyrir ári var efnt til hennar í Basel í Sviss. Markmiðið er að safna fé sem rennur til þróunarverkefna í löndum þar sem fátækt er viðvarandi og einnig að varpa ljósi á aðstæður fátækra. Ronaldo og Zidane verða fyrirliðar hvor í sínu liði og fá skærustu stjörnur knattspyrnunar til að spila með sér. Pierluigi Collina hefur samþykkt að dæma leikinn.
Á fundi með fréttamönnum sögðu knattspyrnuhetjurnar tvær að leikurinn í fyrra hefði heppnast frábærlega og mikilvægt væri að halda málefninu á lofti. Sögðust þeir reiðubúnir til að legga sitt af mörkum til þess að draga úr fátækt enda væri ólíðandi að fimmtungur alls mannkyns gæti vart dregið fram lífið sökum skorts. Ronaldo og Zidane sögðu það á ábyrgð alls heimsins að vinna að því að þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um þróun verði náð sem meðal annars gera ráð fyrir að fátækum verði fækkað um helming fyrir árið 2015.
Markmiðið með knattspyrnuleiknum er þó ekki aðeins að safna fé heldur er einnig ætlunin að upplýsa heimsbyggðina um ástandið í þróunarríkjunum og þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna (nánar um þúsaldarmarkmið S.þ. http://www.un.org/millenniumgoals/). Leikurinn sem háður var í fyrra skilaði 1 milljón svissneskra franka, samsvarandi 57 milljónum íslenskra króna. Þeim fjármunum var varið í verkefni í Brasilíu, Comoros-eyjunum, Gíneu Bissau, Marokkó, Namibíu, Srí Lanka og Víetnam. Verkefnin voru fjölmörg en aðstoðin fólst einkum í að koma á fót litlum fyrirtækjum fyrir konur og íþróttaaðstöðu fyrir götubörn.
Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA styrkir fótboltaleikinn í ár en einnig hafa stór alþjóðleg fyrirtæki á borð við Nike og Adidas heitið því að gefa fótboltamönnum skó og annan búnað. Knattspyrnufélagið Real Madrid hefur veg og vanda að skipulagningu mótsins í samstarfi við UNDP og markaðsfyrirtækið Starzone. Búist er við að allt að 70 þúsund áhorfendur komi á leikinn.



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is