Yfir helmingur íbúa HIV smitaður í sumum fiskimannaþorpum

19.4.2010

Hátt hlutfall

Rúmlega 50% íbúa í sumum fiskimannaþorpum á Ssese eyjum í Úganda eru smitaðir af HIV veirunni og almennt fer hlutfall smitaðra hækkandi, að sögn Dr. Hillary Mitakalamire, sem stýrir heilbrigðismálum á héraðsskrifstofunni á Buggala eyju. Lífshættir farandverkamanna sem flytja frá einni verbúð til annarrar eru stór orsakavaldur í útbreiðslu HIV veirunnar. Landfræðileg lega eyjanna og samgönguerfiðleikar leiða til þess að fæstir HIV smitaðir eru í lyfjameðferð, eða aðeins einn af hverjum tíu.
 
Heilbrigðisþjónusta á eyjunum er almennt ófullnægjandi, mikill skortur er á læknum og öðrum heilbrigðisstarfsmönnum og aðeins sjö heilsugæslustöðvar eru starfræktar á þeim 64 eyjum sem eru byggðar. Hillary segir að erfitt sé að fá lækna til starfa í afskekktum eyjasamfélögum og fæstir starfi lengur en nokkra mánuði í senn. Jafnvel á stærstu eyjunni þar sem aðstaða er fyrir skurðaðgerðir eins og keisaraskurði skortir lækni til að framkvæma aðgerðir. Konur í barnsnauð sem þurfa á keisaraskurði að halda verða því að fara með ferju upp á fasta landið sem tekur að lágmarki þrjá klukkutíma. "Oftast er það of seint", segir Hillary.
 
Hluti af byggðaþróunarverkefni ÞSSÍ á eyjunum lýtur að heilbrigðismálum og Hillary læknir segir þann stuðning ómetanlegan, teymi hafi verið þjálfuð upp í fjölmörgum þorpum og sinni fræðslustarfi um algenga sjúkdóma og ÞSSÍ kosti bát og eldsneyti til vitjana í fjölmörgum eyjasamfélögum. Þá eru heilsugæslustöðvar ekki lengur myrkvaðar eftir að sólin er sest því fyrir íslenskt þróunarfé hafa stöðvarnar verið rafvæddar með sólarorku og því unnt að vera með starfsemi allan sólarhringinn ef nauðsyn ber til. Einnig hefur ÞSSÍ tryggt heilsugæslustöðvunum hreint vatn og fyrir allan þenna mikilvæga stuðning er Hllary læknir afar þakklátur. "Það má vissulega merkja framfarir í heilbrigðismálum á eyjunum en skrefin fram á við eru bæði fá og smá," segir hann.