„Tækifæri til að breyta lífi fólks"
- viðtal við Drífu Hrönn Kristjánsdóttur verkefnastjóra ÞSSÍ á Ssese eyjum

„Þeir sem starfa að þróunarmálum hafa tækifæri til að taka þátt í því að breyta lífsskilyrðum fólks til hins betra og það er bæði mjög heillandi hugmynd og mögnuð upplifun. Í gegnum starfið sérðu verða breytingar á lífi fólks og það er ótrúlega góð tilfinning að eiga hlutdeild í auknum lífsgæðum," segir Drífa Hrönn Kristjánsdóttir í viðtali en hún er stýrir stærsta verkefni Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, þróunarverkefni í Kalangala héraði úti á eyjum í Viktoríuvatni í Úganda. Verkefnið hófst árið 2006 og lýkur árið 2015.
Oft er sagt að þróunarsamvinna sé langhlaup og það taki langan tíma að sjá raunverulegulegan árangur. Í ljósi þess að þróunarverkefnið á eyjunum er hálfnað, eða þar um bil, er Drífa spurð að því hvort það sé ekki rétt að árangurinn sé farinn að koma í ljós svo um munar.
„Þróunarverkefnið hér í Kalangala er langtímaverkefni og við vissum að bíða þyrfti lengur eftir að sjá breytingar gerast en í fullorðinnafræðsluverkefninu, sem var undanfari Kalanagala verkefnisins. Í fullorðinnafræðslunni sést strax við útskrift fyrsta bekkjarins eftir ársnám að fólk hefur öðlast nýja þekkingu og færni. Hins vegar sjáum við núna á fjórða ári verkefnisins að uppskeran er að koma í ljós og ég nefni sérstaklega stuðninginn við skólastarfið. Þar erum við að sjá fleiri krakka koma í skólann, þau fá betri aðbúnað, hærri einkunnir og dregið hefur úr brottfalli nemenda. Einnig höfum við stuðlað að því að þau fái kennslu í listgreinum og stundi íþróttir en gegnum íþróttastarfið hafa börnin hér líka haft tækifæri, oft í fyrsta sinn, til að ferðast um Úganda og ég tel að þessi reynsla barnanna komi til með að skila miklu inn í samfélagið hér í Kalangala, þ.e. að hér á eyjunum ílendist fólk með góða menntun. Og ég neita því ekki að mér finnst afskaplega gleðilegt að eiga hlutdeild í þessari ánægjulegu þróun!"



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is