Afhending bókasafnsbyggingar fyrir sjómannaskóla Malaví
Þann 10. september sl. afhenti umdæmisstjóri ÞSSÍ í Malaví þarlendum stjórnvöldum nýja og glæsilega bókasafnsbyggingu við sjómannaskólann í Monkey Bay. Afhendingin fór fram við hátíðlega athöfn á skólalóðinni að viðstöddum fulltrúum frá stjórnvöldum landsins, auk skólayfirvalda, kennara og nemenda og ýmissa annarra hagsmunaaðila.

Þátttakendur í athöfninni fyrir framan bókasafnsbygginguna
Stuðningur ÞSSÍ við sjómannaskólann í Monkey Bay hefur staðið yfir í tæp fimm ár, eða síðan snemma á árinu 1999. Meginmarkmið samstarfsins er að byggja upp fiskimáladeild við skólann. Stuðningur ÞSSÍ felst einkum í tæknilegri aðstoð, uppbyggingu á tækjakosti skólans og þróun námsgagna, aðstoð við námskrár- og námsefnisgerð, skólastyrkjum til nemenda og framhaldsmenntun kennara. Einn íslenskur vélstjórnarkennari starfar við skólann en til ársloka 2002 starfaði þar einnig íslenskur skipstjórnarkennari.
Samstarfið hefur verið framlengt tvisvar en samstarfssamningurinn rennur út um næstu áramót. Bygging bókasafnsins var því eitt af lokaverkefnunum í þessu samstarfi. Bókasafnið var áður til húsa í litlu herbergi við lélegar aðstæður. Í nýju byggingunni er gott pláss fyrir bókakost skólans og vinnuaðstaða fyrir starfsfólk safnsins er ágæt. Þar er einnig góð lestrar- og vinnuaðstaða fyrir nemendur og kennara. Hluti af bókakosti safnsins er lánaður út til almennings, þannig að safnið er nú jafnframt vísir að almenningsbókasafni, hið eina á stóru svæði.



Rauðarárstígur 27, 125 Reykjavík, sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is