Biðraðir við kjörstaði í Mósambík
Kjörsókn virðist góð og framkvæmd kosninga gengur vel
Langar biðraðir mynduðust við kjörstaði í Mósambík í gær á fyrri degi forseta- og þingkosninga í landinu. Víðast hvar virtist framkvæmd kosninganna ganga eðlilega fyrir sig utan þess að ekki tókst að koma kjörgögnum á réttum tíma til afskekktustu þorpanna vegna úrhellisrigningar og ófærðar. Mósambík er eitt af fjórum samstarfslöndum Þróunarsamvinnustofunar Íslands (ÞSSÍ).
Fjöldi kjósenda var kominn á kjörstaði löngu áður en þeir voru opnaðir. Spenna var mikil í loftinu enda sagður aðeins sjónarmunur vera á fylgi tveggja helstu keppinautanna um forsetastólinn. Kosningarnar eru þær þriðju frá því Mósambík fékk sjálfstæði, en þær standa yfir í tvo daga 1. og 2. desember. Joachim Chissano fráfarandi forseti hefur verið við völd í 18 ár, fimm frambjóðendur berjast um sæti hans. Aðeins tveir þeirra eru hins vegar taldir líklegir til sigurs, Armando Guebuza frambjóðandi Frelimo og Afonso Dhlakama frambjóðandi Renamo.
Frelimo hefur haldið um stjórnartaumana frá því borgarastríðinu lauk árið 1992 og hefur Armando Guebuza forsetaframbjóðandi flokksins heitið því að unnið verði að áframhaldandi friði, stöðugleika og þróun nái hann kjöri. Frelimo sækir fylgi sitt einkum til þéttbýlisins, til höfuðborgarinnar Mapútó og suðurhluta landsins. Íbúar í strjálbýlli héruðum einkum í miðhluta landsins og norðrinu hallast hins vegar meira að Renamo og forsetaframbjóðanda þess flokks, Afonso Dhlakama. Hann hefur umtalsvert fylgi og var í raun aðeins hársbreidd frá því að sigra í kosningunum fyrir 5 árum, þá munaði 4 prósentum á Dhlakama og Chissano fráfarandi forseta.
Chissano forseti hvatti fólk til að nýta kosningarétt sinn í sjónvarpsávarpi í fyrrakvöld og lýsti því yfir að ríkisstofnanir og einkafyrirtæki yrðu lokuð svo kjósendur hefðu tíma til að fara á kjörstað. Þesssi ákvörðun hefur hins vegar lítið að segja fyrir hundruð þúsundir fátækra einyrkja sem þurfa að sinna matjurtagörðum sínum, hirða skepnur eða halda til veiða daglega til að geta dregið fram lífið og séð fjölskyldum sínum farborða.
Gífurlegum fjárhæðum hefur verið varið til þróunaraðstoðar í Mósambík og mikil uppbygging hefur verið í landinu síðustu ár. Andstæðingar Frelimos benda hins vegar á að þrátt fyrir þetta hafi stjórnvöldum ekki tekist að vinna gegn gífurlegri fátækt sem er viðvarandi í landinu. Benda stjórnarandstæðingar máli sínu til stuðnings á að lífslíkur í Mósambík séu aðeins tæp 40 ár, ólæsi útbreitt, barnadauði með því hæsta sem um getur og örbirgð ógnvekjandi.
Aðeins einn flokkur fyrir utan Frelimo og Renamo er talinn líklegur til að koma manni að á þinginu en það er Friðar-, lýðræðis- og þróunarflokkurinn (PDD). Átta milljónir manna eru á kjörskrá í Mósambík en kjörstaðir eru 60 þúsund í 11 kjördæmum. Fjöldi erlendra kosningaeftirlitsmanna er staddur í landinu til að fylgjast með framgangi mála.
(Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) hefur starfað í Mósambík frá árinu 1996).
Byggt á greinum á: www.bbc.co.uk og www.allAfrica.com



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is