Tækifæri að skapast til að koma táknmálskennslu á háskólastig

28.4.2010

taknmalwindhoek

Um þrjátíu nemendur í Kennaraskólanum í Windhoek, höfuðborg Namibíu, hafa valið táknmál sem valgrein í námi sínu við skólann. Boðið var í fyrsta sinn á síðasta ári upp á þennan möguleika í skólanum fyrir áeggjan og stuðning umdæmisskrifstofu ÞSSÍ í landinu en stærsta verkefni ÞSSÍ í Nambíu er á sviði menntunar fyrir heyrnarlausa. Um fimmtán nemendur eru á fyrsta ári í táknmáli og svipaður fjöldi á öðru ári.
 
Barbara Peters aðstoðarrektor skólans og Beau Brewer táknmálskennari voru hér á landi í síðustu viku og kynntu sér táknmálsnám á Íslandi undir leiðsögn starfsmanna Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra. Þær hafa nokkrar áhyggjur af af framtíð táknmálskennslunnar eftir sameiningu Kennaraskólans við Háskóla Nambíu því háskólinn hefur ekki táknmál á námskránni. Davíð Bjarnason verkefnastjóri ÞSSÍ í Namibíu segist hins vegar líta á sameiningu skólanna sem tækifæri til að koma táknmálskennslunni á háskólastig. "Ef rétt verður á málum haldið trúi ég því að sú verði raunin," segir hann.
 
"Það var ákaflega gagnlegt fyrir okkur að heimsækja Samskiptamiðstöðina og aðrar menntastofnanir í Reykjavík. Við erum reynslunni ríkari og höfum öðlast þekkingu sem nýtist okkur til að rökstyðja mikilvægi táknmáls fyrir samfélagið og fulltrúa háskólans," segir Barbara. 
 
Hún bætir við að eftir heimsóknina geri þær báðar sér ljósa grein fyrir mikilvægi þess að nám í táknmáli sé í boði á háskólastigi og það hafi mikið gildi bæði fyrir samfélag heyrnarlausa og almennt fyrir Namibíu.
 
Barbara kveðst skila skýrslu um Íslandsferðina til verkefnisstjóra ÞSSÍ í Namibíu, stjórnenda nýstofnaðrar Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra í Namibíu og deildarstjóra menntasviðs Háskóla Namibíu. "Ég vænti þess líka að rektor háskólans skilji mikilvægi þess að bjóða upp á táknmál sem námsgrein við skólann. Við munum leggja áherslu á að táknmál verði námsgrein innan sérstakrar fræðilegrar einingar, einnig að táknmálskennsla verði í boði sem túlkanám og valgrein fyrir alla kennaranema," segir hún.
 
Heyrnarlaus börn víða um heim hafa kennara sem ekkert kunna í táknmáli og geta varla stafað nafn sitt með fingrunum, hvað þá miðlað námsefninu til nemendanna. Sá mikli áhugi sem táknmálsnámið vekur í kennaraskólanum í Windhoek gefur heyrnarlausum börnum í Namibíu vonir um að sá dagur renni upp fyrr en síðar að táknmálstalandi menntaðir kennarar taki að sér kennsluna og tryggi um leið eðlileg tjáskipti og miðlun upplýsinga í kennslustofunni. Að mati allra hlutaðeigandi er því ákaflega mikilvægt að tryggja áframhaldandi kennslu í táknmáli í kennaranámi.

Sjá einnig viðtal við Valgerði Stefánsdóttur forstöðumann Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra (SHH) -  "Enginn getur tekið frá heyrnarlausum sjálfsvirðinguna sem fylgir því að vera stoltur af táknmálinu og sjálfum sér" 



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica