AidData - nýr vefur með upplýsingum um framlög til þróunarmála
www.AidData.org
Nýr vefur með upplýsingum um framlög til þróunarmála hefur verið opnaður: www.AidData.org. Vefurinn heldur utan um upplýsingar um fjárframlög til þróunarsamvinnu og er ætlað að veita yfirgripsmeiri og ítarlegri upplýsingar um þróunarverkefni en áður hefur þekkst. Síðan gerir þar með tilraun til að kortleggja þróunarsamvinnu og auka gagnsæi í því skyni að bæta samstarf og áætlanagerð framlagsríkja og samstarfslanda þeirra.
Tilgangur síðunnar er í aðalatriðum tvíþættur. Annarsvegar að safna saman upplýsingum sem áður voru dreifðar á marga staði, eða jafnvel ófáanlegar, á einn og sama staðinn, en með tilkomu gagnabankans er í fyrsta skipti hægt nálgast upplýsingar frá ólíkum veitendum þróunaraðstoðar á einn stað. Þannig má finna á síðunni upplýsingar frá tvíhliða framlagsríkjum og fjölþjóðastofnunum og er nú í fyrsta skipti hægt að nálgast samanteknar upplýsingar um framlög nýrra framlagsríkja sem ekki eru aðilar að OECD-DAC, eins og t.d. Indlands, Brasilíu, Kóreu, Saudi Arabíu, Íslands og nýju ESB-landanna svo einhver séu nefnd. Hinsvegar er síðunni ætlað að veita mjög nákvæmar og ítarlegar upplýsingar um þróunarumsvif, niður á einstök verkefni, og birta gögnin á aðgengilegu formi sem auðvelt er að nálgast og vinna með.
Verkefnið er stutt af Bill & Melinda Gates Foundation, Hewlett Foundation, Richard og Judy Finch, og National Science Foundation og er samstarfsverkefni College of William and Mary og Brigham Young University, en síðan byggir að hluta til á samruna PLAID (Project Level Aid) og AiDA (Development Gateway).
Á síðunni er hægt að leita eftir framlagsaðilum, samstarfslöndum, málaflokkum, verkþáttum (activities) og árum. Vefurinn er þó stöðugt í þróun og á næstunni verður hægt að skoða staðsetningu verkefna á kortum. Þá er á áætlun að safna gögnum frá félagasamtökum og stofnunum sem veita fé til þróunarsamvinnu.
Geta má að ÞSSÍ hefur einnig opnað gagnagrunn þar sem nálgast má upplýsingar um verkefni stofnunarinnar frá upphafi. Á forsíðu heimasíðunnar er hnappur sem ber notendur inn á leitarsíðu. Gagnagrunnurinn er á ensku og enn í mótun og því allar athugasemdir og ábendingar velkomnar á netfangið iceida@iceida.is




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is