Kosningaþátttaka undir væntingum
Hiti og úrhelli hafði áhrif á kosningaþátttökuna
Heldur dræm kosningaþátttaka virðist hafa verið í forseta- og þingkosningunum í Mósambík sem fram fóru í landinu í gær og fyrradag. Fullyrt var að óbærilegur hiti á sumum stöðum og úrhellis rigning á öðrum hefði komið í veg fyrir að fólk færi á kjörstað. Bæði Chissano fráfarandi forseti og Arao Litsuri formaður landskjörstjórnar hvöttu kjósendur til að mæta á kjörstað ,,það væri skylda fólks við lýðræðið í landinu”. Orð þeirra reyndust ekki hafa þau áhrif sem vonast var eftir.
Biðraðir mynduðust við kjörstaði þegar þeir voru opnaðir á miðvikudagsmorgun og voru ráðamenn vongóðir um að það vissi á góða kjörsókn. Fljótlega dró þó úr mannfjöldanum og þegar kjörstöðum var lokað klukkan 6 í gærkvöldi var ljóst að kosningaþátttaka hefði verið mun minni en vænst hafði verið. Veðrið er sagt hafa sett strik í reikninginn, ýmist var of heitt eða of vætusamt, en að auki er talið að fjöldi fólks hafi einfaldlega notað tækifærið og tekið því rólega heima við þar sem ríkisstofnunum og flestum einkafyrirtækjum hafði verið lokað í þá tvo daga sem kosningarnar stóðu yfir.
Chissano lýsti yfir sárum vonbrigðum með dræma kosningaþátttöku og varpaði fram þeirri hugmynd að borga fólki fyrir að fara á kjörstað. Sagði Chissano að í landi þar sem ólæsi væri útbreitt, fátækt gífurleg og almenn pólitísk vitund lítil spyrði fólk sig hversu bættara það væri með því að nýta kosningarétt sinn. Einhverja lausn þyrfti að finna á því máli.
Talning atkvæða hófst um leið og kjörstöðum var lokað í gær og var víða talið við kertaljós enda engu rafmagni til að dreifa á mörgum stöðum í sveitum landsins. Fjöldi erlendra eftirlitsmanna fylgist með því að allt fari fram eftir settum reglum, en engar fregnir hafa til þessa borist um misfellur vegna framkvæmd kosninganna eða talningar. Fyrstu niðurstöður sýna að stjórnarflokkurinn Frelimo hafi tekið forystu en í raun er þó er alltof snemmt að segja til um það því langt er þar til niðurstöður kosninganna liggja fyrir. Landskjörstjórn hefur frest til 17. desember til að leggja fram endanlegar tölur.
Joachim Chissano fráfarandi forseti hefur verið við völd í 18 ár. Fimm frambjóðendur börðust um sæti hans. Aðeins tveir þeirra voru hins vegar taldir líklegir til sigurs, Armando Guebuza frambjóðandi Frelimo og Afonso Dhlakama frambjóðandi Renamo.
Frelimo hefur haldið um stjórnartaumana frá því borgarastríðinu lauk árið 1992 og hefur Armando Guebuza forsetaframbjóðandi flokksins heitið því að unnið verði að áframhaldandi friði, stöðugleika og þróun nái hann kjöri. Frelimo sækir fylgi sitt einkum til þéttbýlisins, til höfuðborgarinnar Mapútó og suðurhluta landsins. Íbúar í strjálbýlli héruðum einkum í miðhluta landsins og norðrinu hallast hins vegar meira að Renamo og forsetaframbjóðanda þess flokks, Afonso Dhlakama. Hann hefur umtalsvert fylgi og var í raun aðeins hársbreidd frá því að sigra í kosningunum fyrir 5 árum, þá munaði 4 prósentum á Dhlakama og Chissano fráfarandi forseta.
Íbúar Mósambík kusu einnig 250 fulltrúa til setu á þjóðþingi landsins.
(Mósambík er eitt af fjórum samstarfslöndum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands.)
Byggt á grein á www.bbc.co.uk



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is