Auglýst eftir starfsnemum til Malaví og Mósambík
Þróunarsamvinnustofnun Íslands auglýsir tvær stöður starfsnema lausar til umsóknar. Um er að ræða fjögurra mánaða starfsþjálfun í Malaví og Mósambík tímabilið 16.ágúst til 15. desember. Starfsnemar fá tækifæri til að kynnast starfsemi stofnunarinnar á vettvangi og fá innsýn í ólíkar hliðar starfsins. Umsóknarfrestur er til 7. júní.
Auglýsingin birtist í Fréttablaðinu 21. maí 2010 og má nálgast auglýsinguna hér.
Umsóknir skal senda til Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, með pósti á Þverholt 14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á iceida@iceida.is.




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is