"Engin þjóð hefur rétt til að halda að sér höndum"

27.5.2010

Áhrif kreppunnar á Afríkuríki
Það er siðferðileg skylda okkar að rétta öðrum þjóðum hjálparhönd
Myndin er frá Malaví. Ljósmynd: Gunnar Salvarsson

"Hnitmiðuð þróunarsamvinna er hluti af einbeittri viðleitni okkar til að byggja upp traust á Íslandi á nýjan leik og sýna í verki, að við látum okkur varða um hag þeirra verst settu í heiminum," segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra í grein í upplýsingariti Þróunarsamvinnustofnunar sem Fréttablaðinu 21.maí s.l.
 
Grein untanríkisráðherra heitir "Réttum hjálpandi hönd" og hefst á þessum orðum:
 
"Í miðri kreppunni eru Íslendingar eðlilega uppteknir af þeim efnahagslegu hamförum sem skelltu bankakerfinu og lögðu í einu vetfangi fjötra skulda á þúsundir fjölskyldna. Annars staðar í heiminum ganga þó á sama tíma yfir hljóðlátar hamfarir örbirgðar sem á degi hverjum leggja í valinn þúsundir barna. Kastljós fjölmiðla leikur ekki um þá nöturlegu staðreynd að hvern einasta dag deyja um 24 þúsund börn yngri en fimm ára af völdum sjúkdóma og fátæktar víðs vegar um heiminn. Á tveggja vikna fresti sviptir skortur og örbirgð því fast að 350 þúsund lítil börn lífinu, eða fleiri en alla íbúa Íslands.
 
Engin þjóð, ekki heldur þjóð í tímabundinni kreppu, hefur siðferðilegan rétt til að halda að sér höndum. Öllum ber skylda til að reyna af fremsta megni að rétta þeim hjálparhönd, sem ekki geta borið hönd fyrir höfuð sér, og njóta ekki einu sinni þess sjálfsagða réttar að fá að byrja lífið sem þeim þó var gefið í vöggugjöf. Þess vegna tekur Ísland þátt í alþjóðlegri mannúðarhjálp og þróunarstarfi - jafnvel þó að við glímum við efnahagskreppu."

 



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica