Búið að bora síðustu sjö vatnsbólin í þágu Ovahimba

31.5.2010

Tvær Himbakonur við vatnsból
Tvær Himbakonur við vatnsból
Tvær Himbakonur við vatnsból.
Boraðar hafa verið sjö síðustu holurnar fyrir Ovahimba, hirðingaþjóðflokkinn í Norður-Namibíu, sem fær frá Íslendingum 33 vatnsból áður en Þróunarsamvinnustofnun kveður landið eftir tuttugu ára samvinnu. Síðustu vatnsbólin verða afhent síðar á árinu. Gunnar Salvarsson kynningarstjóri ÞSSÍ fór með Davíð Bjarnasyni verkefnastjóra í Namibíu á fund Himbanna, eins og þeir kallast í daglegu tali, og hitti m.a. Kanjokatungu Tjiumbua sem er starfandi vatnsnefndarformaður í Etara.
 
"Vatnsbólin hafa breytt miklu fyrir okkur," segir hún á máli Ovahimba sem kallast otjihimba. "Áður fyrr þurftum við konurnar að ganga langa leið eftir vatni og karlarnir að fara um langan veg með búpeninginn eftir vatni. Við erum því afar þakklát fyrir vatnsbólið."
 
Hún segir að hreina vatnið hafi líka breytt miklu um heilbrigði fólks, sérstaklega meðal barna. "Áður urðum við að drekka yfirborðsvatn á regntímanum en nú getum við sótt hreint vatn í vatnsbólið og það breytir miklu," segir hún og bætir við að hún fari þrisvar á dag að sækja vatn, að morgni, um miðjan dag og síðdegis.
 
Gjaldkerar hafa verið skipaðir við vatnsbólin og Kanjokatunga Tjiumbuasegir að þeir greiði sem hafi efni á því. Hún segir að gjaldkerinn geymi peningana en stefnt sé að því að stofna reikning um vatnsskattinn.
 
Frásögnin "Á ferð um Himbahéruð í leit að vatni" birtist í upplýsingariti Þróunarsamvinnustofnunar sem fylgdi Fréttablaðinu í morgun og myndin er Kanjokatungu með ungan son á bakinu.



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica