Höfðinginn vill koma til Íslands og þakka fyrir sig
"Fólkið hér nýtur nú betri heilsu en nokkru sinni fyrr vegna hreins og ómengaðs vatns og betrumbættra hreinlætisvenja og aðstöðu. Ólæsi er að þurrkast út vegna skólanna sem hafa verið byggðir og börnin okkar njóta nú menntunar. ÞSSÍ hefur byggt sjúkrahús og heilsugæslustöðvar og fólk fær þar aðhlynningu. Mannslífum er bjargað. Svo við sjáum árangurinn afar greinilega. Það er þess vegna sem ég vil ekki fyrir nokkra muni að ÞSSÍ yfirgefi okkur," segir Welemu Masina, höfðingjann af Nankumba í viðtali við Levi Soko, aðstoðarverkefnisstjóra ÞSSÍ í Malaví.
Höfðinginn lýsir því í viðtalinu að hann vilji koma til Íslands og þakka fyrir sig, fyrir hönd íbúanna í Nankumba sem eru vel á annað hundrað þúsund.




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is